Goycochea var varamarkvörður fyrir Nery Pumpido hjá bæði River Plate og argentínska landsliðinu. HM 1990 átti því aðeins að vera fleiri gæðastundir á varamannabekknum. Hann var í raun þriðji markvörður landsliðsins en Luis Islas hætti við að spila á HM þar sem hann átti ekki að vera aðalmarkvörður.
Martröð Pumpido
Allt fór til fjandans hjá Pumpido á Ítalíu. Hann byrjaði á því að gefa mark gegn Kamerún í fyrsta leik og fótbrotnaði svo illa gegn Sovétríkjunum í öðrum leik Argentínu á mótinu. Þá var komið að Goycochea.
Það var bras á Argentínumönnum en hann sýndi snilldartilþrif í leiknum gegn Brasilíu, hélt búrinu hreinu og sá til þess að Argentína komst áfram í mótinu.
Í átta liða úrslitum mótsins mætti Argentína liði Júgóslavíu. Sá leikur fór í vítaspyrnukeppni. Í vítakeppninni klikkaði sjálfur Diego Maradona en það kom ekki að sök því Goycochea lokaði markinu og kom Argentínu í undanúrslit.
Sagði Maradona að slaka á
„Er ég mætti Diego eftir vítið þá sagði ég honum að slaka á. Ég myndi verja tvær spyrnur,“ sagði markvörðurinn.
Í undanúrslitunum biðu heimamenn frá Ítalíu. Aftur varð að grípa til vítaspyrnukeppni til að fá úrslit. Goycochea sýndi gegn Júggunum að hann var mikill vítabani og hann endurtók leikinn og varði Ítalí í úrslitaleikinn. Hann varði þá spyrnur frá Roberto Donadoni og Aldo Serena.
„Það sló þögn á alla á vellinum. Það var eins og einhver hefði lækkað hljóðið og aðeins heyrðist í liðsfélögum mínum. Mér leið eins og ég væri á litlum velli heima hjá mér,“ sagði Goycochea en leikurinn fór fram í Napoli. Á heimavelli Maradona.
Úrslitaleikurinn gegn Vestur-Þýskalandi tapaðist 1-0 og það var nokkur kaldhæðni í því að eina mark leiksins var skorað af Andreas Brehme úr vítaspyrnu. Goycochea samt í réttu horni og ekki fjarri því að verja.
Þurfti að flýja á hótel
Þrátt fyrir það var Goycochea hampað mikið fyrir frammistöðu sína og markvarðarstaðan í landsliðinu var hans eftir þetta mót. Sjálfur sagði hann að honum hefði liðið eins og heimsmeistara eftir mótið. Skiljanlega.
Er heim var komið var hann eltur á röndum. Argentínumenn vildu knúsa hann og kyssa. Hann fékk ekki stundarfrið og varð að flýja á hótel með eiginkonunni til þess að svefnfrið. Alveg ný staða fyrir manninn sem var vanur því að vera í skugganum.
Þó svo hann hafi spilað í 20 ár þá náði hann samt aðeins að spila 226 leiki á ferlinum. Hann var það mikið á bekknum. Landsleikirnir urðu 44 en hann spilaði með landsliðinu í sjö ár.
Goycochea er 54 ára gamall í dag og starfar sem íþróttafréttamaður. Hann sér um þáttinn Elegante Sport í argentínska sjónvarpinu.