Klettótt auðn á yfirborði smástirnisins Ryugu Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 28. september 2018 06:30 Þessi mynd er tekin af A1 á yfirborði smástirnisins Ryugu. Mynd/jaxa
Japanska geimferðastofnunin (JAXA) hefur birt einstakar myndir sem könnunarför stofnunarinnar tóku af yfirborði smástirnisins Ryugu. Á myndunum, sem eru með þeim fyrstu sem mannkyn hefur tekið af yfirborði smástirnis, blasir við hrjúf og klettótt auðn. Könnunarförin lentu á Ryugu í síðustu viku eftir þriggja og hálfs árs ferðalag um borð í móðurskipi sínu, geimfarinu Hayabusa 2. JAXA hefur nú staðfest að bæði förin, vélmennin A1 og 1B, eru starfhæf eftir þann hamagang sem var í lendingunni. Smástirnið er 900 metra breitt og tilheyrir flokki smástirna sem eiga rætur að rekja til árdaga sólkerfisins. A1 og 1B munu mæla hitastig smástirnisins ásamt því að taka ítarlegar myndir af yfirborði þess. Hönnun faranna þykir einkar athyglisverð. Þau eru í kringum eitt kíló að þyngd og ferðast milli staða með því að hoppa en til þess nýta þau máttlítið þyngdarafl smástirnisins. Ryugu er á sporbraut um Sólina og er í um 140 til 210 milljóna kílómetra fjarlægð frá Jörðinni. Það tekur smástirnið 16 mánuði að hringa Sólina.
Birtist í Fréttablaðinu Vísindi Mest lesið Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Innlent Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Skiptar skoðanir um stækkun Þjóðleikhússins Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísar Klöru Innlent Fleiri fréttir Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Sjá meira