Aron burstaði Dag og strákarnir hans spila til úrslita Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. ágúst 2018 12:37 Aron Kristjánsson. Vísir/Getty
Aron Kristjánsson og lærisveinar hans í landsliði Barein eru komnir alla leið í úrslitaleikinn í handboltakeppni Asíuleikanna og hafa unnið alla sjö leiki sína í keppninni. Barein vann ellefu marka stórsigur á Japan í undanúrslitaleiknum í dag, 31-20, og mætir Katar í úrslitaleik mótsins. Dagur Sigurðsson þjálfar japanska landsliðið en hans strákar eiga enn möguleika á verðlaunum vinni þeir bronsleikinn á móti Suður-Kóreu. Husain Al-Sayyad var atkvæðamestur í liði Barein en hann skoraði tíu mörk úr þrettán skotum. Barein var með sex marka forystu í hálfleik, 15-9, og vann síðan seinni hálfleikinn með fimm mörkum, 16-11. Barein er búið að vinna alla sjö leiki sína á mótinu en þetta eru jafnframt sjö fyrstu keppnisleikir liðsins undir stjórn Arons. Barein vann alla leiki sína í milliriðlinum á móti Íran (29-23), Suður-Kóreu (27-25) og Hong Kong (43-19). Í riðlakeppninni vann liðið Írak (30-24), Indland (32-25) og Taívan (37-21). Þetta verður í fyrsta sinn sem Barein spilar til úrslita í handboltakeppni Asíuleikanna en besti árangurinn var þriðja sætið á leikunum fyrir fjórum árum síðan.Árangur Barein í handboltakeppni Asíuleikanna: 1982 - 7. sæti 1986-1998 - Tók ekki þátt 2002 - 6. sæti 2006 - 7. sæti 2010 - 6. sæti 2014 - Brons2018 - Gull eða silfur
Handbolti Mest lesið Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Handbolti Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Handbolti Fleiri fréttir Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Sjá meira