Tottenham á beinu brautina á ný Anton Ingi Leifsson skrifar 22. september 2018 18:15 Tottenham fagnar öðru markinu í kvöld. vísir/getty Tottenham vann mikilvægan 2-1 sigur á Brighton í síðdegisleiknum í enska boltanum. Harry Kane og Erik Lamela sáu um markaskorunina fyrir Tottenham. Það stefndi allt í að staðan yrði markalaus er liðin myndu ganga til búningsherbergja en Tottenham fékk vítaspyrnu á 42. mínútu. Á punktinn steig Harry Kane, sem hefur átt nokkuð erfitt uppdráttar á þessu tímabili, en hann var afar öruggur og kom Tottenham í 1-0. Brighton fékk tækifærin til þess að jafna í síðari hálfleik til þess að jafna metin en næsta mark var hins vegar Tottenham. Það skoraði Erik Lamela stundarfjórðungi fyrir leikslok eftir afar laglega sókn. Gestirnir minnkuðu muninn í uppbótartíma með marki Anthony Knockaert en nær komust þeir ekki. Lokatölur 2-1 sigur Tottenham á útivelli. Þetta var góður sigur fyrir Tottenham sem hafði fyrir leikinn tapað þremur leikjum í röð í öllum deildum. Nú eru þeir í fimmta sætinu með tólf stig eftir sex leiki. Brighton er með fimm stig eftir fyrstu sex leikina. Enski boltinn
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn