Gunnar og Oliveira mestu mátar eftir bardagann Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. desember 2018 14:30 Það fór vel á með Gunnari og Oliveira eftir bardagann. Mynd/Facebook
Þrátt fyrir að hafa tapað fyrir Gunnari Nelson á UFC bardagakvöldi í Toronto um helgina var Alex Oliveira hæstánægður með að fá mynd af sér með Mjölnismanninum, ef marka má mynd sem Haraldur Dean Nelson, faðir Gunnars, birti á Facebook í gær. Oliveira þurfti að fá 29 spor saumuð í ennið eftir að hafa fengið þungt olnbogahögg í andlitið í annarri lotu bardaga þeirra um helgina. Stuttu síðar kláraði Gunnar bardagann með hengingartaki en þá fossblæddi úr enni Brasilíumannsins. Þetta var kærkominn sigur hjá Gunnari en bardaginn um helgina var hans fyrsti síðan í júlí 2017. Gunnar sagði eftir bardagann að hann stefni á að berjast fljótlega á næsta ári og er hann með augu á bardagakvöldi UFC í London í mars. Hann greindi þó einnig frá því að hann hafi meiðst á hné í aðdraganda bardagans um helgina og á eftir að koma í ljós hversu alvarleg þau eru. Gunnar hefur nú barist ellefu sinnum í UFC og unnið átta bardaganna. Oliveira hefur barist fjórtán sinnum á sínum UFC ferli og tapið um helgina var hans fjórða.
MMA Mest lesið Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Saka með þrennu í ótrúlegum bronsleik Fótbolti Flugóður forseti FIFA Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Íslenski boltinn Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Fleiri fréttir Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn Saka með þrennu í ótrúlegum bronsleik Finnur til með leikmönnum: „Síðustu mánuðir verið erfiðir“ „Ég er bara í brjáluðu skapi“ McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda Vildi fá Nyland fyrir HM: „Það verður ansi erfitt að fá hann núna“ Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga „Þurfum að læra að stýra spennustiginu á milli verkefna“ „Eina leiðin er upp“ Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt Fékk sigur í fimmtugsafmælisgjöf Topplið Lengjudeildarinnar fær liðsstyrk frá Stjörnunni Annar þrjú núll sigur hjá strákunum hans Freys Stórsigur á Seltjarnarnesi en markalaust í Grindavík Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Viktor Nói lánaður til Njarðvíkur Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Hamilton klessti og Ferrari í kapphlaupi við tímann Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Púttin að leika Scheffler grátt „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann „Það ruglaður að manni finnst maður alltaf bestur“ Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Sjá meira