Forseti Nígeríu neitar því að hafa dáið og að tvífari hafi komið í staðinn Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. desember 2018 08:03 Muhammadu Buhari er forseti Nígeríu. vísir/epa
Muhammadu Buhari, forseti Nígeríu, neitar því að hann hafi dáið og að tvífari hans hafi tekið við af honum sem Buhari sjálfur.Orðrómur hefur gengið á samfélagsmiðlum í marga mánuði þess efnis að Buhari hafi dáið og að tvífari hans hafi komið í stað hans en forsetinn dvaldi í Bretlandi í fimm mánuði á síðasta ári þar sem hann var í meðferð við ótilgreindum sjúkdómi. Ein tilgátan varðandi sjúkdóm Buhari var sú að hann hefði í raun látist og að tvífari hans frá Súdan, Jubril að nafni, hefði komið í stað hans í forsetaembættið. Náði þessi tilgáta miklu flugi á samfélagsmiðlum en Buhari, sem sækist eftir því að ná aftur kjöri í kosningum í febrúar, hefur nú tjáð sig um málið í fyrsta sinn. Engar sannanir hafa verið lagðar fram um að tilgátan sé rétt en mikið hefur verið horft á alls kyns myndbönd á Youtube þar sem fullyrt er að Buhari hafi látist og Jubril komið í staðinn. „Þetta er í alvörunni ég, ég fullvissa ykkur um það. Ég mun bráðum fagna 76 ára afmælinu mínu og ég er enn í fullu fjöri,“ sagði Buhari þar sem hann ávarpaði landa sína í Póllandi í gær þar sem hann er staddur vegna ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP24, þar sem umræðuefnið er loftslagsbreytingar.
Afríka Nígería Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira