Jöklar Íslands rýrnuðu ekki í fyrsta sinn í aldarfjórðung Kristján Már Unnarsson skrifar 4. desember 2018 20:30 Horft til Svínafellsjökuls, eins af skriðjöklum Öræfajökuls, sem er syðsti hluti Vatnajökuls. Stöð 2/Arnar Halldórsson.
Stærstu jöklar landsins stóðu í stað og jafnvel stækkuðu á síðustu tólf mánuðum, frá hausti til haust, samkvæmt nýjustu mælingum. Þetta er í fyrsta sinn í aldarfjórðung sem íslensku jöklarnir rýrna ekki. Jöklasérfræðingur telur þetta eðlilegt frávik frá hnattrænni hlýnun sem geti skýrst af kaldari sjó sunnan við landið. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. Afkoma íslensku jöklanna þykir sterk vísbending um þróun loftslags hérlendis. Jöklarannsóknamenn Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands fóru í október í árlega mælingaleiðangra um Vatnajökul og Langjökul og nú liggja niðurstöður fyrir um þessar tvær stærstu jökulbreiður landsins. Finnur Pálsson er verkefnastjóri jöklarannsókna við Jarðfræðistofnun Háskóla Íslands.Stöð 2/Sigurjón Ólason„Þær standa nokkurn veginn í stað þetta árið, sem er óvanalegt miðað við síðustu 25 ár. Þær hafa verið að rýrna, bæði Vatnajökull og Langjökull, sérstaklega þó Langjökull,“ segir Finnur Pálsson, verkefnastjóri jöklarannsókna við Jarðfræðistofnun Háskóla Íslands. Þannig hafði Langjökull þynnst að jafnaði um einn og hálfan metra á ári undanfarin tuttugu ár, að sögn Finns. „En síðustu nokkur árin hefur hann verið nærri núlli, það er að segja, hann hefur hvorki stækkað né minnkað. Og það á við um þetta ár, bæði fyrir Vatnajökul og Langjökul.“ Árleg mæling á Hofsjökli, sem sérfræðingar Veðurstofu Íslands kynntu fyrir tíu dögum, sýnir að hann hefur örlítið bætt á sig milli ára, og takmörkuð mæling á yfirborði Mýrdalsjökuls sýnir að hann stækkaði einnig. Þar varð raunar veruleg viðbót.Frá Hofsjökli.Vísir/Vilhelm.Finnur segir þessar tölur ekkert tilefni til að efast um hnattræna hlýnun, þetta teljist eðlileg frávik. „Ein orsökin gæti verið að það er heldur kaldari sjór sunnan við land,“ segir Finnur. Spurningu um hvort þetta sé vísbending um að Ísland sé að sigla inn í kuldaskeið vísar hann á veðurfræðinga. „Hins vegar er það staðreynd að það hefur verið heldur kaldara síðustu nokkur árin. Sumarið í sumar var mjög óvanalegt, kannski ekki endilega vegna kulda heldur vegna þess að það var svo þungbúið meirihluta sumarsins, sérstaklega hérna á öllu vestanverðu landinu.“Frá Langjökli.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.Athyglisvert er að hlýtt sumar austanlands kom greinilega fram á Vatnajökli. Þannig mældist rýrnun austanmegin á Vatnajökli en viðbót vestanmegin. Og kalt sumar vestanlands sást á Langjökli. „Ég held að það hafi verið snjósöfnun meira og minna fram í ágúst á efri hluta Langjökuls, sem er mjög óvenjulegt,“ segir verkefnastjóri jöklarannsókna Háskólans. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Tengdar fréttir Lengsta brú landsins bíður örlaga sinna Lengsta brú landsins, Skeiðarárbrú, bíður nú örlaga sinna eftir að hún var leyst af hólmi með nýrri Morsárbrú. "Hún er eins og hefðarfrú, ég held sé best hún standi.“ 11. september 2017 21:00 Árnar horfnar og eftir standa gagnslitlar brýr Þrjár stórar brýr á Suðausturlandi hafa mætt þeim örlögum á undanförnum áratugum að verða gagnslitlar og jafnvel óþarfar vegna þess að árnar hurfu sem þær áttu að brúa. 2. nóvember 2013 19:09 James Bond myndi varla þekkja aftur Jökulsárlón Á þeim aldarþriðjungi sem liðinn er frá því Jökulsárlón birtist fyrst í alþjóðlegri stórmynd hefur lónið tvöfaldast að stærð, náð að verða dýpsta vatn Íslands og jökuljaðarinn hefur skroppið saman um 3-4 kílómetra. 1. nóvember 2017 22:00 Skeiðará komin yfir í Gígjukvísl „Við skjótum á að helmingurinn af Skeiðará sé farin yfir í Gígju,“ segir Jón Ragnarsson, starfsmaður Vegagerðarinnar á Höfn. 15. júlí 2009 03:30 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira
Lengsta brú landsins bíður örlaga sinna Lengsta brú landsins, Skeiðarárbrú, bíður nú örlaga sinna eftir að hún var leyst af hólmi með nýrri Morsárbrú. "Hún er eins og hefðarfrú, ég held sé best hún standi.“ 11. september 2017 21:00
Árnar horfnar og eftir standa gagnslitlar brýr Þrjár stórar brýr á Suðausturlandi hafa mætt þeim örlögum á undanförnum áratugum að verða gagnslitlar og jafnvel óþarfar vegna þess að árnar hurfu sem þær áttu að brúa. 2. nóvember 2013 19:09
James Bond myndi varla þekkja aftur Jökulsárlón Á þeim aldarþriðjungi sem liðinn er frá því Jökulsárlón birtist fyrst í alþjóðlegri stórmynd hefur lónið tvöfaldast að stærð, náð að verða dýpsta vatn Íslands og jökuljaðarinn hefur skroppið saman um 3-4 kílómetra. 1. nóvember 2017 22:00
Skeiðará komin yfir í Gígjukvísl „Við skjótum á að helmingurinn af Skeiðará sé farin yfir í Gígju,“ segir Jón Ragnarsson, starfsmaður Vegagerðarinnar á Höfn. 15. júlí 2009 03:30