Hér liggur munurinn á Val og Stjörnunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. ágúst 2018 15:15 Baldur Sigurðsson, fyrirliði Stjörnunnar, fær gula spjaldið í leik liðanna í gær. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Valur og Stjarnan gerðu jafntefli í báðum leikjum sínum í Pepsi-deildinni í sumar en Valur er samt með þriggja stiga forystu í efsta sæti deildarinnar. Vísir skoðaði nánar hvar munurinn liggur. Valur og Stjarnan hafa bæði fengið tvö stig í innbyrðisleikjum liðanna í deildinni í sumar og þessi þriggja stiga munur myndaðist því í leikjunum á móti hinum tíu liðum deildarinnar. Það er einkum frábært gengi Valsmanna gegn liðunum í efri hluta sem skilar liðinu efsta sætinu en Stjörnumönnum hefur gengið betur með liðin í neðri hlutanum. Valsmenn hafa náð í 16 stig af 21 mögulegum á móti liðunum sem eru núna í 3. til 6. sæti Pepsi-deildarinnar. Það er ekki mikið hægt að kvarta yfir 76 prósent stiga í húsi á móti liðum eins og Breiðabliki, KR, FH og Grindavík. Stjörnumenn hafa aftur á móti tapað dýrmætum stigum á móti bæði KR og Grindavík. Stjarnan vann engan af fjórum leikjum sínum á móti þeim, tapaði báðum leikjum sínum á móti KR og gerði svo tvö jafntefli við Grindavík. Valsmenn hafa náð í sjö stig, fimm fleiri en Stjarnan, í leikjum sínum við KR og Grindavík. Grindvíkingar eru aftur á móti eina liðið sem hefur náð að vinna Íslandsmeistara Vals í Pepsi-deildinni í sumar. Eina liðið fyrir utan Stjörnuna sem hefur hins vegar tekið stig í báðum leikjum sínum á móti Val er Fylkir. Liðin gerðu jafntefli í báðum leikjum sínum. Stjarnan tók aftur á móti sex stig út úr leikjum sínum við Árbæjarliðið. Nú eru aðeins fjórar umferðir eftir af Pepsi-deildinni og Valsmenn eiga þrjú stig á Stjörnuna. Valur á eftir leiki við KA (úti), ÍBV (heima), FH (úti) og Keflavík (heima). Stjarnan á eftir leiki við Fjölni (úti), KA (heima), ÍBV (úti) og FH (heima).Samanburður á stigasöfnun Vals og Stjörnunnar:- Stig á móti liðum í efri hluta - Valur +5Valur: 16 stig (76% af þeim í boði)Stjarnan: 11 stig (52% af þeim í boði)- Stig á móti liðum í neðri hluta en í öruggum sætum - Stjarnan +4Valur: 12 stig (67% af þeim í boði)Stjarnan: 16 stig (89% af þeim í boði)- Stig á móti liðum í neðri hluta en í öruggum sætum - Valur +2Valur: 9 stig (100% af þeim í boði)Stjarnan: 7 stig (78% af þeim í boði)- Stig Valsmanna á móti öðrum liðum en Stjörnunni -Á móti liðum í efri hluta: 16 stig (76% af þeim í boði) 3. Breiðablik 6 (3+3) 4. KR 4 (3+1) 5. FH 3 (3) 6. Grindavík 3 (3+0)- Valur á eftir leik við FH (ú)Á móti liðum í neðri hluta en í öruggum sætum: 12 stig (67% af þeim í boði) 7. KA 3 (3) 8. ÍBV 3 (3) 9. Víkingur R. 4 (3+1) 10. Fylkir 2 (1+1)- Valur á eftir leiki við KA (ú) og ÍBV (h)Á móti liðum í fallsæti: 9 stig (100% af þeim í boði) 11. Fjölnir 6 (3+3) 12. Keflavík 3 (3)- Valur á eftir leik við Keflavík (h)- Stig Stjörnunnar á móti öðrum liðum en Val -Á móti liðum í efri hluta: 11 stig (52% af þeim í boði) 3. Breiðablik 6 (3+3) 4. KR 0 (0+0) 5. FH 3 (3) 6. Grindavík 2 (1+1)- Stjarnan á eftir leik við FH (h)Á móti liðum í neðri hluta en í öruggum sætum: 16 stig (89% af þeim í boði) 7. KA 3 (3) 8. ÍBV 3 (3) 9. Víkingur R. 4 (1+3) 10. Fylkir 6 (3+3)- Stjarnan á eftir leiki við KA (h) og ÍBV (ú)Á móti liðum í fallsæti: 7 stig (78% af þeim í boði) 11. Fjölnir 3 (3) 12. Keflavík 4 (3+1)- Stjarnan á eftir leik við Fjölni (ú)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira