Tugir handteknir á andmarxískum mótmælafundi Vésteinn Örn Pétursson skrifar 6. ágúst 2018 16:38 Berkeley hefur áður verið vettvangur mikilla mótmæla. Hér má sjá stuðningsmenn og andstæðinga Donalds Trump Bandaríkjaforseta takast á. Vísir/Getty
Tugir voru handteknir í aðgerðum lögreglunnar í Berkeley í Kaliforníu í gær þegar til átaka kom á milli mótmælenda á „andmarxískum“ mótmælafundi. Að því er fram kemur í yfirlýsingu frá lögreglunni voru mótmælendurnir handteknir fyrir ólöglegan vopnaburð en fyrir mótmælin hafði lögregla bannað ýmis konar hluti, svo sem hafnaboltakylfur og ísaxir, til að koma í veg fyrir ofbeldi. Lögreglan lagði hald á þónokkurt magn af slíku á mótmælunum. Þrír særðust lítillega í mótmælunum þegar mótmælendur köstuðu sprengiefni í átt að lögreglu. Í yfirlýsingu lögreglunnar segir: „Þrátt fyrir að hundruð mótmælenda hafi verið saman komin, og margir mótmælenda hafi borið vopn og sýnt af sér árásargjarna hegðun, urðu engin alvarleg meiðsl á fólki, hvorki almenningi né opinberum starfsmönnum.“ Lögreglan bætti þó við að mótmælendur hefðu sýnt af sér öfgakennda hegðun, enda hefðu þeir valdið umtalsverðum skemmdum á 21 bíl, skorið á dekk farartækja og gengið svo langt að kveikja í einum bíl. Í kringum 500 manns fylktu liði á mótmælin, sem eiga rætur að rekja til mótmælafundar annars staðar í borginni, en hann bar yfirskriftina „No to Marxism in America,“ eða „Nei við Marxisma í Bandaríkjunum.“
Bandaríkin Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher gert árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Sjá meira