Lögbann sett á birtingu teikninga að byssum á netinu Kjartan Kjartansson skrifar 31. júlí 2018 23:47 Cody Wilson, maðurinn sem hugðist birta teikningar til að prenta út byssur, með plastbyssu sem hann prentaði út með þrívíddarprentara. Vísir/AP
Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur sett lögbann á birtingu á teikningum til að framleiða byssur með þrívíddarprentara með vísan til þjóðaröryggis. Lögbannið var sett á aðeins nokkrum klukkustundum áður en til stóð að birta teikningarnar.Washington Post segir að dómsmálaráðherrar átta ríkja auka Columbia-svæðis hafi krafist lögbannsins þar sem birting teikninganna væri ógn við þjóðaröryggi. Ríkisstjóri New York setti jafnframt lögbann á manninn sem hugðist birta teikningarnar á netinu. Lögmaður mannsins sem stýrir félagasamtökum sem aðhyllast rétt almennings til að bera vopn segir að lögbannið stríði gegn tjáningarfrelsi hans. Maðurinn hefur barist fyrir rétti sínum til þess að birta teikningar af skotvopnum á netinu frá árinu 2013. Yfirvöld hafa hins vegar haldið því fram að birting teikninganna jafngildi ólöglegum útflutningi á skotvopnum. Öllum að óvörum ákvað ríkisstjórn Donalds Trump forseta að gera sátt við manninn og veita honum undanþágu frá lögum til að birta teikningarnar. Svo virðist sem að teikningarnar hafi verið birtar á netinu í dag þrátt fyrir lögbannið. Yfirvöld óttast að ef teikningarnar verði aðgengilegar hverjum sem er á netinu verði til vopnabúr órekjanlegra skotvopna og eigendur þeirra geti komið sér undan bakgrunnseftirliti með skotvopnaeigendum og auðveldlega eytt þeim eftir notkun.
Bandaríkin Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira