Mourinho tilbúinn til að selja Martial utan Englands Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 23. júlí 2018 12:30 Anthony Martial hefur lítið fengið að spila keppnisleiki fyrir United vísir/getty
Frakkin Anthony Martial hefur átt erfitt uppdráttar hjá Manchester United undir stjórn Jose Mourinho og ekki náð að sanna sig til þessa í æfingaferð liðsins í Bandaríkjunum. Mourinho er tilbúinn til þess að selja leikmanninn, en hann má þó ekki fara til Chelsea. Enskir fjölmiðlar greina frá því að það sé áhugi fyrir leikmanninum innan herbúða Lundúnaliðsins. Mourinho vill hins vegar ekki selja Martial til liðs á Englandi. Martial hló að blaðamanni og gekk í burtu þegar hann var spurður hvort hann yrði áfram hjá United eftir markalaust jafntefli við San Jose Earthquakes fyrir hálf tómum velli í Kaliforníu í gærkvöld. Martial á að hafa komist að þeirri niðurstöðu að honum sé ómögulegt að vinna Mourinho á sitt band. Martial kostaði United 36 milljónir punda fyrir þremur árum þegar hann kom frá Mónakó. Hann var í byrjunarliði United í 18 leikjum á síðasta tímabili og er fyrir aftan Marcus Rashford og Alexis Sanchez í goggunarröðinni. Ed Woodward, framkvæmdarstjóri United, vill hins vegar halda Martial hjá félaginu þar sem hann heldur leikmanninn geta orðið einn þann besta í heimi. Mourinho ætlar ekki að standa í vegi fyrir Martial biðji hann um sölu frá félaginu, svo lengi sem hann verði seldur til félags utan Englands. Þá mun verðmiðinn á Martial vera að minnsta kosti 60 milljónir punda. Juventus hafði áhuga á Martial en á líklega ekki efni á honum eftir kaupin á Cristiano Ronaldo. Bayern München gæti verið líklegur áfangastaður og yrði Martial þá dýrasti leikmaður í sögu félagsins.
Enski boltinn Tengdar fréttir Martial vill yfirgefa United Anthony Martial, framherji Manchester United, hefur ákveðið það að hann vilji yfirgefa félagið en þetta kemur fram í máli umboðsmanns Frakkans. 14. júní 2018 19:30 United vill ekki láta Martial fara fyrir Alderweireld Manchester United vill festa kaup á varnarmanninum Toby Alderweireld frá Tottenham. Forráðamenn félagsins vilja þó ekki setja upp neinn skiptidíl með Anthony Martial. 25. maí 2018 18:45 Pochettino sagður vilja Martial Breski miðillinn The Telegraph greinir frá því að Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, vilji ólmur fá Anthony Martial frá Manchester United í sumar. 20. maí 2018 14:30 Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Sjá meira
Martial vill yfirgefa United Anthony Martial, framherji Manchester United, hefur ákveðið það að hann vilji yfirgefa félagið en þetta kemur fram í máli umboðsmanns Frakkans. 14. júní 2018 19:30
United vill ekki láta Martial fara fyrir Alderweireld Manchester United vill festa kaup á varnarmanninum Toby Alderweireld frá Tottenham. Forráðamenn félagsins vilja þó ekki setja upp neinn skiptidíl með Anthony Martial. 25. maí 2018 18:45
Pochettino sagður vilja Martial Breski miðillinn The Telegraph greinir frá því að Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, vilji ólmur fá Anthony Martial frá Manchester United í sumar. 20. maí 2018 14:30