Tónlist

Gengur illa að fylla í skarð Cardi B

Bergþór Másson skrifar
Cardi B og Bruno Mars baksviðs á Grammy verðlaunahátíðinni.
Cardi B og Bruno Mars baksviðs á Grammy verðlaunahátíðinni.
Bruno Mars hefur ekki enn fundið tónlistarmann til þess að koma í stað Cardi B á tónleikaferðalagi sínu um Bandaríkin. Rapparinn Cardi B hætti við tónleikaferðalagið til þess að sinna móðurhlutverkinu. TMZ greinir frá því að Bruno Mars sé orðinn mjög áhyggjufullur vegna málsins.

Cardi B hætti við að túra um Bandaríkin ásamt Bruno til þess að ná sér eftir fæðingu síns fyrsta barns, en hún eignaðist dótturina Kulture með rapparanum Offset nú í byrjun júlí.

Sjá einnig: Cardi B hættir við tónleikaferðalag: „Ég vanmat þetta mömmudæmi“

Slúðurmiðillinn TMZ greinir frá því að starfsmenn Bruno Mars séu á fullu að reyna að finna tónlistarmann í stað Cardi en ekkert sé að ganga.

Starfsfólk Bruno hefur haft samband við fjölmarga tónlistarmenn en enginn virðist geta komið með honum á túr með svona stuttum fyrirvara.

Tónleikaferðalagið á að hefjast í September og verða tónleikar haldnir í flest öllum stórborgum Bandaríkjanna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×