Lífið

Oddvitaáskorunin: Draumur að vera trillukarl á Ströndum

Samúel Karl Ólason skrifar
Þórólfur Júlían Dagson að blása í blöðrur.
Þórólfur Júlían Dagson að blása í blöðrur.
Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2018 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. 



Þórólfur Júlían Dagson leiðir lista Pírata í Reykjanesbæ í sveitarstjórnarkosningunum.

Þórólfur útskrifast frá Fisktækiskóla Suðurnesja í Grindavík sem Fisktæknir og hefur unnið við sjómennsku um árabil áður en hann hóf störf hjá Icelandair nýverið. Hann hefur verið talsmaður andstæðinga stóriðju í Helguvík sem barist hafa gegn því að hér rísi iðnaður sem veldur skaða á heilsu fólks.

Einnig tók Þórólfur þátt í því að stofna íbúðafélag Suðurnesja með það markmið að koma á eðlilegum húsnæðismarkaði með ýmsum úrræðum fyrir bæjarbúa að koma sér þaki yfir höfuðið og var annar vara þingmaður Pírata í Suðurkjördæmi 2016. Þessi ásamt ýmsum öðrum málefnum Pírata brenna á Þórólfi og komu honum í oddvitasæti Pírata á Suðurnesjum fyrir sveitarstjórnarkosningar 2018 og hefur sinnt þeirri áskorun samviskusamlega. Þórólfur hefur setið í stjórn Pírata á Suðurnesjum frá 2016.

Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?

Reykjanesið, Það er svo margt út á Reykjanesinu sem hægt er að skoða, Sandvík, brúin á milli heimsálfanna Gunnuhver og svo er góð upplifun að ganga upp á Valahnjúk, það er fallegt útsýnið að Eldey og á góðum veðurdegi getur maður séð háhyrninga og súlur stinga sér eftir síld þegar hún gengur inn röstina, fyrsti viti Íslands var byggður á Valahnjúki og var það verkefni Arnbjörns Ólafssonar að verða fyrsti vitavörður á íslandi (en Garðskagi og Garðskagaviti, Óskasteinarnir).

Hvar á Íslandi myndir þú helst vilja búa? (Fyrir utan eigið sveitarfélag)

Norðurfirði á ströndum, það væri draumurinn að vera trillu karl og róa frá Norðurfirði undir Hornbjargið og út á Hornbanka, svo gæti maður skellt sér í sund hvenær sem er í Krossneslaug.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Franskar og Bernessósan á Hamborgarabúllu Tómasar. Hamborgarinn er bara meðlæti :D

Hvaða mat ert þú bestu/ur að elda?

Humarsúpan

Uppáhalds „guilty pleasure“ lag?

Bomfunk MC's - Track Star

Hvað er það vandræðalegasta sem komið hefur fyrir þig, sem segja má frá?

Ekkert sem ég man því miður eftir.

Draumaferðalagið?

Sigla út frá Sandgerði snemma að kvöldi og stoppa við Eldey, leggja mig í svona 4 tíma og vakna svo með háhyrninga og súlur í æti allt í kringum mig, renna svo færunum niður og lenda í trölla ufsa. Fátt sem toppar það.

Trúir þú á líf eftir dauðann?

Nei, það sem þú skilur eftir þig eru minningar annara um þig.

Besti hrekkurinn sem þú hefur gert eða lent í?

Þegar dóttir mín faldi bíl lyklana mína þegar hún var þriggja ára gömul. Það tók heila viku að finna þá.

Hundar eða kettir?

Kettir.

Uppáhalds „guilty pleasure“ bíómynd?

American History X.

Hvaða leikari ætti að leika þig í bíómynd?

Chris Hemsworth.

Í hvaða Game of Thrones ætt værir þú og af hverju?

Targaryen.

Hefur þú verið tekin/n af lögreglunni?

Já.

Uppáhalds tónlistarmaður?

Hans Zimmer.

Uppáhalds bókin?

Dean Koontz - The Bad Place.

Uppáhalds föstudagsdrykkur?

Red-Bull.

Uppáhalds þynnkumatur?

Drekk ekki áfengi.

Þegar þú ferð í fríið, sólarströnd eða menning?

Sólarströnd.

Hefur þú pissað í sundlaug?

Já.

Hvaða lag kemur þér í gírinn?

Disturbed - Land Of Confusion.

Er eitthvað smávægilegt sem farið hefur í taugarnar á þér í þínu sveitarfélagi sem þú vilt laga?

Gatnamótin þegar maður kemur niður af grænásbrekku og niður að Njarðvíkurbraut, klárlega komin tími á Hringtorg þar.

Á að banna flugelda?

Nei, en það á að vera strangara eftirlit með innihaldi þeirra.

Hvaða landsliðsmaður í knattspyrnu værir þú og af hverju?

Klárlega Gylfi Þór Sigurðsson. Því við höfum báðir áhuga á útgerð og sjómennsku.

Oddvitaáskorunin er hluti af kosningaumfjöllun Vísis. Öllum oddvitum á landinu býðst að taka þátt. Áhugasamir oddvitar geta verið í sambandi við samuel@stod2.is. Tekið verður við efni fram að kosningum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×