Þar sem menntun snýst um líf eða dauða Pierre Krähenbühl skrifar 20. apríl 2018 11:00 Heimamenn kölluðu þetta „eftirlitshlið dauðans.” 500 palestínsk flóttabörn hættu lífi sínu á hverjum einasta degi í tvö ár á leið sinni um eftirlitshliðið til að komast í skóla UNRWA – Palestínu-flóttamannahjálparinnar. Umsjónarmaður skólans sagði: „þessi börn dreymir um að vera læknar. Vígasveitir áreittu börnin, en þau létu það ekki á sig fá því í þeirra augum er menntun spurning um líf eða dauða; eina von þeirra.“ Þessi námfúsu palestínsku flóttabörn voru að koma frá flóttamannabúðunum Yarmouk í úthverfi Damaskus, höfuðborgar Sýrlands. Þar dvöldust lengi 160 þúsund palestínskir flóttamenn en nú eru aðeins 6 þúsund eftir. Árið 2015 náðu liðsmenn svokallaðs Íslamska ríkis búðunum á sitt vald. Umsátrið um Yarmouk vakti skelfingu víða um heim. Allir skólar UNRWA, Palestínu-flóttamannahjálparinnar, hafa skemmst eða verið eyðilagðir. Fyrir sex vikum var eftirlitshliðnu lokað og opnað í stutta stund tveimur vikum seinna. Meirihluti 900 barna tók þá erfiðu ákvörðun að yfirgefa heimili foreldra sinna og flytja inn til ættingja og vina hinum meginn víglínunnar til að tryggja að þau yrðu ekki hindruð í að sækja skóla.Frá skóla á vegum UNRWA.Mynd/UNRWAÁkveðni þeirra er gott dæmi um hve mikils virði menntun er í augum palestínskra flóttamanna. Þrátt fyrir ótrúlegt óöryggi og tröllvaxinna erfiðleika vegna átakanna í Sýrlandi hafa 48 þúsund nemendur haldið áfram að sækja skóla á vegum UNRWA, en þeir voru 60 þúsund fyrir stríð. UNRWA hefur fitjað upp á ýmsum nýjungum til þess að halda áfram kennslu í Sýrlandi og víðar, til dæmis með útsendingu á kennslustundum í gervihnattasjónvarpi og sjálfsnámi utan kennslustofu. Þessi börn eru á meðal þeirra 560 þúsund palestínsku flóttamanna sem Sýrland hýsti fyrir stríð. Meir en 120 þúsund hafa flúið land, þar af rúm 32 þúsund til Líbanons og 17 þúsund til Jórdaníu. Mikill meirihluti þeirra sem eftir eru þurfa á stöðugri mannúðarhjálp að halda til þess að mæta brýnustu þörfum, jafnt mat sem húsaskjól. Nærri 60% þeirra sem enn eru í Sýrlandi hafa flosnað upp að minnsta kosti einu sinni. Neyðaráætlun UNRWA miðar að því á þessu ári að tryggja þessar frumþarfir, að útvega matvæli og fjárhagsaðstoð við 418 þúsund Palestínumenn í Sýrlandi, auk þeirra sem eru í Líbanon og Jórdaníu. Þessu til viðbótar eru reknar 15 læknastöðvar og 11 útibú þeirra í þágu skráðra palestínskra flóttamanna, þrátt fyrir að 8 af 23 heilsugæslustöðvum hafi verið eyðilagðar. Þessi viðtleitni til að bjarga mannslífum er í mikilli hættu eftir að einn stærsti stuðningsaðili UNRWA hélt eftir 300 milljón dollara aðstoð á þessu ári. Þessi ákvörðun hefur haft mjög alvarlegar afleiðingar og enn skortir 165 milljónir dollara til að endar nái saman. Hún hefur einnig sett strik í reikninginn fyrir kjarnastarfsemina á sviði menntunar, heilsugæslu, aðstoðar og félagslegrar þjónustu í Sýrlandi, Líbanon, Jórdaníu, Vesturbakka Jórdanar og Gasasvæðinu. Skólaganga 526 þúsund palestínskra námsmanna, heilsugæsla 3.5 milljóna sjúklinga og neyðarastoð við 1.7 milljón manns um öll Mið-Austurlönd, hefur verið stefnt í hættu.UNRWA hefur fitjað upp á ýmsum nýjungum til þess að halda áfram kennslu í Sýrlandi og víðar.mYND/unrwaUNRWA hefur brugðist við af krafti. Í fyrstu snérum við okkur til fjárveitenda og báðum þá um að flýta greiðslu framlaga þeirra. Margir urðu við þeirri ósk og erum við þeim þakklátir. Við hleyptum af stokkunum herferðinni #DignityIsPriceless og fjáröflunarráðstefna var haldin í Rómarborg. Helstu fjárveitendur brugðust við af mikilli rausn. Fram að þessu hafa fyrirheit um 150 milljón dala aðstoð borist frá ríkjum á borð við Katar, Sádi Arabíu, Tyrkland, Kanada, Noreg, Indland, Sviss, Frakkland og ýmis fleiri. Þetta er umtalsverð og kærkomin viðleitni og ég tel að við höfum skapað fordæmi fyrir aðra fjárveitendur, nýrri og eldri, til þess að taka af skarið og hjálpa okkur að halda áfram þjónustu okkar. Mikið verk er þó óunnið. Leyfið mér að segja söguna af, Faisal, fimmtíu og sex ára gömlum kennara hjá UNRWA sem dæmi um ákveðni okkar og úrræði. Faisal er frá Dera´a flóttamannabúðunum í suður-Sýrlandi. Hann fer að heiman klukkan hálf sjö á hverjum morgni og fer krókótta leið um tvær víglínur og fjórar eftirlitsstöðvar til þess að sinna kennslu þriðja bekkjar í Dera´a. Þrjár skólabyggingar UNRWA hafa verið eyðilagðar en 300 nemendum er kennt í bráðabirgðaskýlum. Það tók Faisal tíu mínútur að fara í skólann fyrir stríð. Nú leggja hann og 14 starfsmenn UNRWA sig í lífshættu til að komast til Dera´a til þess að kenna ungum drengjum og stúlkum. Hugrekki þeirra er dæmigert fyrir fjögur þúsund starsmenn UNRWA í Sýrlandi og hættan er raunveruleg. 18 starfsmenn okkar hafa látist síðan stríðið byrjaði og 23 er saknað. Ég er uggandi yfir því að þurfa innan fárra að tilkynna Faisal og öðrum sem hafa lagt sig í lífshættu til að tryggja nauðsynlega þjónstu, að þau missi vinnuna vegna þess að okkur hafi ekki tekist að afla nægs fjár til þess að halda áfram starfi okkur við menntun, heilsugæslu og neyðarastoð. Slíkt yrði með ólíkindum. UNRWA er holdgervingur vonar og réttinda samfélags sem stendur verulega höllum fæti. Ég hvet heimsbyggðina til að rísa upp til varnar 900 nemendum í Yarmouk og palestínskum flóttamönnum í Sýrlandi. Reisn þeirra og starf UNRWA skiptir máli.Pierre Krähenbühl er forstjóri Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna fyrir Palestínu. Hann er einn af framkvæmdastjórum Sameinuðu þjóðanna og í sendiefnd samtakanna á alþjóðaráðstefnu um Sýrland sem haldin verður í Brussel 24. og 25.apríl. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 13.12.2025 Halldór Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Að fyrirgefa sjálfum sér Sigurður Árni Reynisson Skoðun 5 vaxtalækkanir á einu ári Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Hér starfa líka (alls konar) konur Selma Svavarsdóttir Skoðun Falskur finnst mér tónninn Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Kílómetragjald í blindgötu – þegar stjórnvöld misskilja ferðaþjónustuna Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju umræðan um Eurovision, Ísrael og jólin hrynur þegar raunveruleikinn bankar upp á Hilmar Kristinsson Skoðun Minna stress meiri ró! Magnús Jóhann Hjartarson Skoðun Skoðun Skoðun Að fyrirgefa sjálfum sér Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hér starfa líka (alls konar) konur Selma Svavarsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjald í blindgötu – þegar stjórnvöld misskilja ferðaþjónustuna Þórir Garðarsson skrifar Skoðun 5 vaxtalækkanir á einu ári Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Falskur finnst mér tónninn Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Treystir Viðreisn þjóðinni í raun? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þingmaður með hálfsannleik um voffann Úffa Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Allt fyrir ekkert – eða ekkert fyrir allt? Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Glansmynd án innihalds Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Kæra Kristrún, eru Fjarðarheiðargöng of dýr? Helgi Hlynur Ásgrímsson skrifar Skoðun Samvinna er eitt en samruni allt annað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Eyðilegging Kvikmyndasafns Íslands Sigurjón Baldur Hafsteinsson skrifar Skoðun Ráðherra sem talar um hlýju en tekur úrræði af veikum Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir skrifar Skoðun Saman gegn fúski Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórn grefur undan samkeppni, þú munt borga meira Grétar Ingi Erlendsson,Erla Sif Markúsdóttir,Guðbergur Kristjánsson skrifar Skoðun Hvernig varð staðan svona í Hafnarfirði? Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Samherjarnir Ingi Freyr og Georg Helgi Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Minna stress meiri ró! Magnús Jóhann Hjartarson skrifar Skoðun Innflytjendur, samningar og staðreyndir Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Vindmyllur Þórðar Snæs Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Ál- og kísilmarkaðir í hringiðu heimsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Útgerðarmenn vaknið, virkjum nýjustu vísindi Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Hversu margar ókeypis máltíðir finnur þú í desember? Þorbjörg Sandra Bakke skrifar Skoðun Sjálfgefin íslenska – Hvernig? Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Vonbrigði í Vaxtamáli Breki Karlsson skrifar Skoðun Reykjalundur – lífsbjargandi þjónusta í 80 ár Magnús Sigurjón Olsen Guðmundsson skrifar Skoðun Svörin voru hroki og yfirlæti Davíð Bergmann skrifar Skoðun Umönnunarbilið – kapphlaupið við klukkuna og krónurnar Bryndís Elfa Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Eurovision: Tímasetningin og atburðarásin sögðu meira en ákvörðunin Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson Skoðun
Af hverju umræðan um Eurovision, Ísrael og jólin hrynur þegar raunveruleikinn bankar upp á Hilmar Kristinsson Skoðun
Skoðun Kílómetragjald í blindgötu – þegar stjórnvöld misskilja ferðaþjónustuna Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórn grefur undan samkeppni, þú munt borga meira Grétar Ingi Erlendsson,Erla Sif Markúsdóttir,Guðbergur Kristjánsson skrifar
Skoðun Umönnunarbilið – kapphlaupið við klukkuna og krónurnar Bryndís Elfa Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Eurovision: Tímasetningin og atburðarásin sögðu meira en ákvörðunin Gunnar Salvarsson skrifar
Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson Skoðun
Af hverju umræðan um Eurovision, Ísrael og jólin hrynur þegar raunveruleikinn bankar upp á Hilmar Kristinsson Skoðun