Börn í limbó - #Brúumbilið Bergþór Smári Pálmason Sighvats skrifar 1. apríl 2018 16:55 Að eignast barn er sannkölluð lífsins gjöf. Fyrir marga foreldra er það þá fyrst sem lífið öðlast tilgang. Foreldrar fá það hlutverk að ala upp lítinn einstakling og gera sitt besta til að einn daginn verði hann hamingjusamur og sjálfstæður einstaklingur. Hamingja okkar foreldra felst í þeirri vegferð að sjá barnið sitt vaxa og dafna. En á sama tíma veldur koma barnsins mörgum foreldrum gríðarlegum áhyggjum. Mánaðartekjur rýrna um leið og útgjöld aukast. Foreldrar þurfa skyndilega að lifa með þá staðreynd að annað foreldrið eigi á hættu að missa vinnuna einfaldlega vegna þess að mikill skortur er á úræðum fyrir foreldra, frá fæðingarorlofi að næstu dagvistun og jafnvel fram að grunnskóla. Staða foreldra eftir fæðingarorlof hefur verið mikið í umræðunni upp á síðkastið. Staðan veldur því að áhyggju- og örvæntingafullir foreldrar ungra barna skortir úræði til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og dagvistunar. Raunin er sú að bilið er orðin að gjá og brúin sem er nú til staðar nær ekki yfir gjánna sem sífellt breikkar. Fleiri og fleiri börn sitja hreinlega á biðlistum til að komast á biðlistann hjá dagforeldri. Mörg þeirra eru svo lengi á biðlistum að þau vaxa upp úr þeim til þess eins að komast á nýjan biðlista hjá leikskólanum. Þetta er að sjálfsögðu óásættanlegt ástand og alveg hreint ótrúlegt að þessu hafi verið leift að gerast. Að loknu fæðingarorlofi lenda börnin okkar í nokkurskonar félagslegu limbói. Leikskólar eru eina dagvistunarúrræðið á vegum sveitarfélagana. Það er verkefni hvers og eins sveitarfélags að ákveða þann aldur sem stuðningur við foreldra hefst. Ekki er kveðið á um það í lögum við hvaða aldur börn eigi rétt á dagvistunarúrræði. Dagforeldrakerfið byggir á framboði einkaaðila og sveitarfélögum ber ekki skylda til að niðurgreiða kostnað vegna þjónustu dagforeldra né að tryggja framboð þeirra. Það eru þó einhverjir dagforeldrar sem starfa í Reykjavík en langt frá því nægjanlega margir til að anna eftirspurn. Algengt mánaðargjald dagforeldra er um 60 til 90 þúsund fyrir fulla vistun. Vandamálið sem þessi gjá skapar leiðir af sér annað vandamál. Núverandi skipan dagvistunarmála gerir það nær ómögulegt fyrir báða foreldra að vera á vinnumarkaði að loknu fæðingarorlofi. Foreldrar verða því að gera það upp við sig hvort þeirra verður heima með barnið að loknu fæðingarorlofi og hvort þeirra fer út á vinnumarkaðinn. Í flestum tilfellum er það faðirinn sem fer út á vinnumarkaðinn og móðirin er heima. Þó svo að margir feður taki þá ákvörðun að vilja vera heima á meðan móðirin fer að vinna þá er staðreynd sú að atvinnumöguleikar karlmanna eru jafnan betri og launin að meðaltali hærri. Svo spilar oft inn í það að konur eru oft ennþá með barnið á brjósti. Þetta skapar gífurlegt ójafnvægi á vinnumarkaðnum þar sem konum er liggur við haldið utan markaðsins fyrir það eitt að vera mæður. Feður fá á sama tíma minni tíma á þessum mikilvægu uppvaxtar árum með börnunum sínum. Því margir þeirra verða að taka á sig tvöfalda vinnu til að brúa þá tekjuskerðingu sem orsakast því að vera eina fyrirvinnan. Fjöldamörg dæmi eru um að feður halda til vinnu á svipuðum tíma og barnið fer á fætur og koma heim á svipuðum tíma og barnið fer að sofa. Foreldrið sem fer á vinnumarkaðinn fær þar af leiðandi mikið minni tíma með barninu sínu og allt álagið á heimilinu lendir á hinu foreldrinu. Úr getur orðið vítahringur þar sem foreldrar hafa ekki tíma fyrir hvort annað sem hefur svo áhrif á samband þeirra. Þetta getur leitt til sambandsslita og þar með geta fjölskyldur sundrast. Samkvæmt rannsóknum eru sambandsslit mun líklegri á fyrstu árum barnsins en öðrum. Nýlega hefur verið fjallað um það að á síðustu árum hafa skilnaðir verið að færast í aukin. Foreldrar ættu að geta verið lausir við kvíðann og óvissuna um hvernig þeir ætla að „brúa bilið“ að fæðingarorlofi loknu þar sem það að ala upp kornabarn er alveg nógu krefjandi þó hitt bætist ekki við. Það verður að taka á þessu gríðarlega vandamáli. Það verður að brúa allt bilið milli fæðingarorlofs og grunnskóla. Dagvistun verður að vera raunhæfur og aðgengilegur kostur þar sem biðlistar eru gagnsæir svo hægt sé að veita þeim eftirfylgni og gæta þess að ekkert barn falli milli skips og bryggju. Það verður að fara yfir kerfið frá grunni og þeir foreldrar sem fá ekki dagvistun ættu að fá heimgreiðslur. Þar fara niðurgreiðslur dagforeldra til foreldranna sem fá ekki dagvistunarúrræði. Þá verður að koma á ungbarnadeildum á öllum leikskólum en það verður auðvitað ekki hægt fyrr en það er búið að bæta úr manneklu leikskólanna, bæta starfsaðstöðu starfsfólksins og sinna nauðsynlegu viðhaldi skólanna. Það verður að stækka og fjölga leikskólum. Það þarf og verður að setja meira fjármagn í leikskólana, svo einfalt er það. Við erum ekki að fara að leysa manneklu skólana með heldri borgurum eða öðrum plástrum heldur verðum við að hækka laun leiksskólakennara og virða menntun þeirra til fjár. Það verður að þjónusta betur foreldra í Reykjavík og það verður að bjóða fjölskyldum uppá raunhæfa þjónustu. Setjum börnin í forgang með því að hlúa að undirstöðum þeirra og velferð. Gerum Reykjavík að fjölskylduvænni borg. #Brúumbilið !Höfundur skipar 6. sæti á lista Framsóknarflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun