Vanefndir borgaryfirvalda í skólamálum Þórdís Pálsdóttir skrifar 4. apríl 2018 14:00 Skólabyggingar og skólaumhverfi þurfa fyrst og síðast að taka mið af þörfum nemenda. Öryggi og heilsa nemenda á ávallt að vera í forgrunni. Góð stefna sem auðvelt er að framkvæma og fylgja eftir ef vilji er fyrir hendi. Sjálf hef ég starfað að skólamálum síðastliðin 24 ár eða frá árinu 1994 og á þeim tíma hef ég öðlast þekkingu og samanburð frá ári til árs. Þegar kemur að aðstöðu barnanna þori ég að fullyrða að framtaksleysi núverandi meirihluta í Reykjavík í skólamálum sé augljóst þegar litið er til skóla í Grafarvogi, nánar tiltekið þann skóla sem stendur mér næst en það er ekki einsdæmi. Þess vegna rennur mér eiginlega blóðið til skyldunnar, ef svo má segja, þegar kemur að því að deila því með ykkur hvernig aðstöðu barnanna er fyrirkomið í skólanum sem ég starfa í.Þrjátíu manns í sextíu fermetrum Byrjum á námsaðstöðunni. Skólastofan er þéttsetin börnum sem hafa sum hver náð stærð fullorðinna einstaklinga. Ímyndið ykkur, sem fullorðið fólk, að sitja með hátt í 30 öðrum einstaklingum í rúmlega 60 fermetrum í 5 – 6 klukkustundir á dag, fimm daga vikunnar. Væri það ásættanleg vinnuaðstaða fyrir ykkur? Í sömu þéttsetnu stofunni eru tveir gluggar, með opnanlegum fögum, í sömu hæð og skrifborðin, gluggarnir snúa í suðurátt og því oft ansi heitt. Fimm stillingar eru á viftunni sem er í loftinu og ef hún er stillt á miðstillingu þá fjúka blaðsíður til og þurrkur kemur í augu barnanna. Algerlega óviðunandi. Það er í öllu falli fjarstæðukennt hversu litlu fjármagni er varið til að skipta upp stórum árgöngum. Stjórnendur skóla eiga að hafa það vald að geta metið aðstæður í árgöngum og haft meira frjálsræði við ráðstöfun fjármagns. Þá þannig að það bitni ekki á öðrum árgöngum og/eða öðru skólastarfi. Í dag er þessu þannig háttað að nauðsynlegt er að skera niður á einum stað ef koma á til móts við stóra eða mjög fjölbreytta árganga. Það segir sig sjálft að þetta fyrirkomulag er ekki gott fyrir neinn, hvorki nemandann né kennarann.Sett aftast á forgangslista borgaryfirvalda Færum okkur næst yfir í mötuneytið. Matsalur barnanna er í miðrými. Af hverju? Jú, því fræðslustjóra á þeim tíma fannst það sniðug hugmynd. Þrír útgangar eru á mötuneytinu, allir í sitthvora áttina og þegar kalt er úti þurfa börnin að borða í kuldanum, sem verður til þess, skiljanlega, að þau vilja gjarnan fá að borða í úlpunum sínum. Í miðrýminu er mjög hátt til lofts og bergmálar hressilega sem er líka ósanngjarnt gagnvart börnunum. Við úttekt var sú ákvörðun tekin að setja upp hitablásara í anddyri útganga til að koma í veg fyrir kulda. Þá var einnig ákveðið að setja upp skilrúm í matsalnum sem áttu að dempa bergmálið. Hitablásararnir björguðu miklu en skilrúmin hafa engu skilað enda ekki enn komin hús þó nú séu liðin tvö ár frá niðurstöðum úttektar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þau voru sett aftast á forgangslista borgaryfirvalda því þau voru svo dýr og „fansí“. Þá er komið að skólalóðinni. Skólinn var byggður 1991. Skólalóðin hefur setið á hakanum hjá borginni í mörg, mörg ár. Foreldrasamfélagið sendi marga tölvupósta og myndir af lóðinni, sem áttu að varpa ljósi á ófremdarástand, en ekkert gerðist. Ungt barn kom með móður sinni að skólanum og spurði hvort þarna inni væru kýr, slíkt var forarsvaðið fyrir utan skólann. Hér eru engar ýkjur. Eftir nokkurn tíma voru lagðar hellur með fram skólanum. Brekkan á skólalóðinni var hættuleg, rennibrautin var hættuleg og kastalinn enn verri. Börnin voru farin að slasa sig á öllum stöðum. Þegar svo var komið gyrti borgin sig loks í brók, þó bara til hálfs og lagaði umhverfið að einhverju leyti. Sumir skólar hafa jafnvel fengið upplyftingu tvisvar á meðan skólalóðin okkar er enn ókláruð. Þá hafa börnin, stjórnendur og foreldrasamfélagið margítrekað beðið um svokallaða battavelli, raunar í mörg, mörg ár, en ekkert gerist. Þetta er eini skólinn í Grafarvogi sem ekki er með þá, einungis malbikaða og götótta fótboltavelli sem geta verið hættulegir, sérstaklega ef þeir eru ísilagðir. Þessi vandræðagangur meirihlutans gengur ekki lengur. Við verðum að gera betur þegar kemur að börnunum okkar. Það verður ekki lengur við það unað að ákvarðanir séu teknar miðlægt með þeim hætti sem lýst er hér að ofan. Við verðum að gera skólana að öflugri, sterkari og sjálfstæðari menntastofnunum. Þar spilar aðstaða sem börnin okkar búa við í skólunum lykilhlutverk. Höfundur er grunnskólakennari í Grafarvogi og frambjóðandi í 13. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun