Rússar ætla að bregðast af krafti við refsiaðgerðum Samúel Karl Ólason skrifar 6. apríl 2018 23:28 Bandaríkin kynntu í dag nýjar refsiaðgerðir sem beinast gegn 24 auðjöfrum og embættismönnum í rússlandi og tólf fyrirtækjum í eigu auðjöfra og tveimur fyrirtækjum í eigu ríkisins. Vísir/AFP
Yfirvöld Rússlands segjast ætla að bregðast af krafti við nýjum refsiaðgerðum Bandaríkjanna sem kynntar voru í dag. Í yfirlýsingu frá Utanríkisráðuneyti Rússlands segir að Bandaríkin þurfi að láta af þeirri blekkingu að Rússar muni sætta sig við aðgerðir af þessu tagi. Þrýstingur myndi ekki fá Rússa til að breyta hátterni sínu og að refsiaðgerðir þjónuðu einungis þeim tilgangi að sameina Rússnesku þjóðina. „Auðvitað munum við ekki sætta okkur við þessar and-Rússa aðgerðir án þess að svara kröftuglega fyrir okkur.“ Bandaríkin kynntu í dag nýjar refsiaðgerðir sem beinast gegn 24 auðjöfrum og embættismönnum í rússlandi og tólf fyrirtækjum í eigu auðjöfra og tveimur fyrirtækjum í eigu ríkisins. Haft var eftir bandarískum embættismönnum að aðgerðirnar væru vegna „illviljaðra aðgerða“ Rússa um allan heim. Þar á meðal vegna afskipta Rússa af forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2016.Sjá einnig: Bandaríkjastjórn refsar sjö rússneskum ólígörkum„Án þess að bíða eftir áhrifum síðustu refsiaðgerða hafa stjórnmálamenn í Washington tekið þá fáránlegu ákvörðun að ráðast gegn fyrirtækjum sem hafa lengi átt í viðskiptatengslum við Bandaríkin, sem þúsundir starfa treysta á,“ segir í yfirlýsingunni samkvæmt frétt Reuters.Sérfræðingar sem blaðamenn Business Insider ræddu við segja líklegt að aðgerðir þessar muni reita Vladmir Putin, forseta Rússlands, til reiði. Þær beinist að ríkustu mönnum Rússlands sem margir hverjir tengist Putin með nánum hætti. Ólíklegt er að bankar víða um heim muni eiga í viðskiptum við þessa aðila á meðan þeir eru á lista Fjármálaráðuneytis Bandaríkjanna.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Fleiri fréttir Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Sjá meira