Sport

Snorri Einarsson í 56. sæti

Magnús Ellert Bjarnason skrifar
Snorri Einarsson (fremstur) í keppninni í morgun.
Snorri Einarsson (fremstur) í keppninni í morgun. vísir/getty
Snorri Einarsson varð fyrstur íslendinga til að keppa á Vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang í Suður-Kóreu.

Snorri hafnaði í morgun í 56. sæti í 30 km skiptigöngu karla. Kom hann í mark á 1:23:33.9 klst og varð 7,13 mín­út­um á eft­ir Norðmann­in­um Si­men Hegstad Kru­e­ger sem varð ólymp­íu­meist­ari á tím­an­um 1:16,20 klst.

Norðmenn sem hafa verið í sérflokki í þessari grein undanfarin ár röðuðu sér í þrjú efstu sæt­in í göng­unni. Snorri keppti undir merkjum Noregs til 2016 þegar hann ákvað að skipta yfir og keppa fyrir hönd Íslands. Snorri á íslenskan föður en norska móður og er því með tvöfalt ríkisfang.

Í skiptigöngu eru fyrstu 15 km göng­unn­ar með hefðbund­inni aðferð áður en skipt er svo um búnað og 15 km með frjálsri aðferð gengn­ir í beinu fram­haldi.

Freydís Halla Einarsdóttir er næst íslendinga til að keppa á vetrarólympíuleikunum í Suður-Kóreu, en hún keppir í stórsvigi á morgun. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×