Fjölskylda úr eldsvoða í húsaskjól hjá verktaka Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 11. janúar 2018 07:45 Hús fjölskyldunnar brann til grunna aðfaranótt þriðjudags. Fréttablaðið/ERNIR
Verktakafyrirtæki í Mosfellsbæ hefur skotið skjólshúsi yfir fjölskylduna sem missti allt sitt þegar timburhús hennar, Reykjabraut í Mosfellsbæ, brann til kaldra kola aðfaranótt þriðjudags. Fjölskyldan hefur búið á gistiheimili frá því hún voru útskrifuð af sjúkrahúsi. Vonir standa til að þau geti flutt strax í dag í einbýlishús sem verktakafyrirtækið lánar fjölskyldunni tímabundið á meðan leitað er að varanlegu húsnæði fyrir hana. Þetta staðfestir Nanna Vilhelmsdóttir, nágranni þeirra, sem hóf söfnun á nauðsynjum fyrir fjölskylduna, í samstarfi við Rauða krossinn í Mosfellsbæ. „Söfnunin hefur gengið framar vonum,“ segir Nanna en hún var í húsi Rauða krossins í Þverholti í gær og tók á móti gjöfum til fjölskyldunnar.Nanna Vilhelmsdóttir, nágranni fjölskyldunnar, hóf söfnun í gær.„Núna þurfum við að heyra aftur í því fólki sem var að bjóða húsbúnað og húsgögn en ég afþakkaði allt slíkt í gær,“ segir Nanna og segist ekki hafa þorað að taka við húsgögnum og húsbúnaði enda ekki legið fyrir hve fljótt húsnæðisvandi fjölskyldunnar leystist. Hún lýsir ánægju með að húsnæði hafi fundist jafn fljótt og raun ber vitni. Nanna segir að börnin hafi þegar fengið vilyrði fyrir kojum en hjónin vanti rúm og elsta soninn sem er um tvítugt vanti einnig rúm. „Svo vantar auðvitað bara allt til heimilishaldsins. Það er búið að bjóða potta- og hnífasett en þau eru auðvitað allslaus að mestu.“ Nanna segir að börnin séu orðin býsna vel útbúin í bili með fatnað og þess háttar en enn þá vanti mjög föt á karlmennina. Þá hefur fjölskyldan einnig fengið framlög í formi gjafakorta og inneigna í matvöruverslunum og Nanna segir þessar gjafir nýtast afar vel. Aðspurð segir hún slíkar gjafir allar vera frá einstaklingum. En þó eru líka fyrirtæki að láta af hendi rakna. Þannig fái fjölskyldan bæði síma og spjaldtölvur frá fyrirtækjum. Nanna verður í húsi Rauða krossins eftir hádegi í dag og tekur á móti framlögum og gjöfum til fjölskyldunnar. Hjónin sjálf eru yfir sig þakklát fyrir allan stuðninginn. Að sögn fjölskylduvinar sem Fréttablaðið ræddi við vilja þau koma á framfæri þakklæti til allra sem hafa stutt þau og ekki síst mikinn andlegan stuðning sem þau hafa fengið frá foreldrum, vinum og vandamönnum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira