Sykurpúkinn út á einni viku Artasan kynnir 2. janúar 2018 10:00 Milli mála er gott að fá sér ávexti, grænmeti, hnetur og fræ og forðast unnin matvæli.
Að losna við sykurlöngun og sykur úr mataræðinu er ávísun á meiri orku og heilbrigðari lífsstíl. Nokkur góð ráð og bætiefni gætu komið mörgum af stað á nýju ári og auðveldað framhaldið. Að koma sér „í gírinn“ í byrjun árs reynist mörgum erfitt. Það er erfitt að rétta sólarhringinn af, hætta að borða sætindi, fara að hreyfa sig meira og koma reglu á hlutina. Sumir byrja þó af fullum krafti með því að taka U-beygju í mataræðinu, öllu óhollu er hent og skáparnir stútfylltir af hollustu. Hreyfingu má ekki vanta og er árskort í ræktinni kjörið til að tryggja það. Vera má að þetta lukkist hjá sumum og vonandi hjá sem flestum en það er engu að síður staðreynd að strax þegar janúar er búinn fækkar í ræktinni og allt of margir eru ekki að ná öllum þeim markmiðum sem sett voru,“ segir Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsumarkþjálfi hjá Artasan.Sykur veldur bólgum og fitusöfnun„Sykur er eitthvað sem gleður bragðlauka flestra okkar en er líka eitt það óhollasta sem við látum ofan í okkur. Sykur veldur nefnilega fíkn sem þýðir að erfitt er að hætta án þess að finna verulega fyrir því. Hann veldur bólgum í líkamanum sem við finnum oft sérstaklega fyrir í liðunum. Hann kemur ójafnvægi á þarmaflóruna og eykur líkur á sveppasýkingum, hefur slæm áhrif á blóðsykurinn og insúlínframleiðslu líkamans sem ýtir undir fitusöfnun í líkamanum. Mikil sykurneysla orsakar einnig oft sykursýki II og eykur líkur á hjartasjúkdómum.“ Sykurlaus á 1 viku„Eftir hátíðarnar hafa margir innbyrt óhóflega mikið af sykri og það þarf töluverðan viljastyrk til að losa sig við púkann sem sestur er á öxlina og kallar stöðugt á meira af þessum næringarsnauðu hitaeiningum. Bara það að losa sig við sykur úr mataræðinu getur tekið verulega á og því gott að gefa sér a.m.k. viku bara í það verk. Það gefur okkur gott start því ávinningur af sykurleysinu eingöngu er ótrúlega mikill. Það er t.d. aukin orka, jafnari blóðsykur, betri svefn og minni naslþörf. Ef sykurneyslan er mjög mikil getur dugað fyrstu dagana að taka út gosdrykki og alla þá drykki sem innihalda hitaeiningar, einnig ávaxtasafa. Þegar öllum sætindum er svo sleppt eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga: - Drekka mikið vatn - Borða hreina fæðu* - Fá sér ávexti, grænmeti, hnetur og fræ milli mála - Forðast unnin matvæli og einföld kolvetni (hveiti, hvít grjón o.fl.) - Hreyfa sig - Sofa nóg Þegar talað er um hreina fæðu er átt við mat sem krefst yfirleitt ekki innihaldslýsinga: kjöt, fiskur, egg, ávextir, grænmeti, hnetur, fræ og ber eru gott dæmi um það. Falinn sykur er víða og því er gott að vera vakandi yfir því hvað fer í innkaupakörfuna.“Má þá aldrei neitt ?„Það verður hver og einn að setja sér sín markmið og reglur,“ segir Hrönn. „Hjá sumum gengur þetta ekki upp öðruvísi en að sykur sé alfarið tekinn út en aðrir þola vel að taka einn dag í viku þar sem má fá sér það sem annars er bannað. Muna þá bara að það er EINN dagur, ekki þrír. Einnig er góð regla að einblína svolítið á þá hluti sem MÁ, ekki á það sem er bannað.“Minni sykurlöngun með Raspberry Ketones„Rasberry Ketones er náttúrulegur andoxunargjafi sem inniheldur kjarna úr hindberjum og grænt te og hefur það verið gríðarlega vinsælt þyngdarstjórnunarefni hér á landi í nokkur ár en flestir tala um að sykurlöngunin minnki mikið og jafnvel hverfi. Grænt te er fullt af andoxunarefnum og lífrænum efnasamböndum sem geta haft mikil áhrif á starfsemi líkamans. Þar á meðal er bætt heilastarfsemi og aukin fitubrennsla,“ segir Hrönn.Agnes Hlín AndrésdóttirGefur aukinn kraftAgnes Hlíf Andrésdóttir viðskiptastjóri á auglýsingastofunni H:N segir að fyrir sig sé það lykilinn að velgengni, bæði í leik og starfi, að halda góðu jafnvægi í mataræði og hreyfingu. „Rasberry Ketones kom því eins og himnasending inn í lífið mitt. Það dregur ekki aðeins úr sykurþörfinni heldur gefur mér aukinn kraft í æfingarnar og veitir oftar en ekki þetta „litla auka“ sem stundum uppá vantar þegar kemur að daglegu amstri. Græna te-ið hjálpar mér að halda góðri einbeitingu lengur og orkan helst jafnari og stöðguri en ella," segir Agnes Hlíf Andrésdóttir.
Mest lesið Af vængjum fram: „Aldrei“ notað fíkniefni og er alls ekki með nein húðflúr Lífið „Það er aldeilis ekki sjálfsagt að hafa heilsu“ Lífið Edda Falak á von á dreng Lífið Stjörnulífið: „Tvær klámkerlingar á kynfræðiráðstefnu“ Lífið Springsteen aflýsir nokkrum tónleikum af heilsufarsástæðum Lífið Forsetaáskorunin: Hefur aldrei lent í slagsmálum Lífið Kosningalag: Örþrifaráð eða snilldarútspil? Lífið Brauðtertuveisla í brauðtertusamkeppni á Selfossi Lífið Balti hélt að Pálmi myndi aldrei mæta Bíó og sjónvarp Kate Beckinsale lætur tröllin heyra það Lífið Fleiri fréttir Afmælisafsláttur Skanva í fullum gangi Spennan í hámarki fyrir lokadaginn Handgerðir leirpottar fyrir kröfuharða kaupendur Nutrilenk liðbætiefnin breyta öllu á álagstímum „Bannað að hvísla að dómaranum!!“ Átakanleg saga um erfiðar ákvarðanir, sekt og áföll, fegurð og ást, líf og dauða Í sumarform á 6 vikum Sigurviss lið hefja leikinn í Leikið um landið Langar þig að fylgjast með vinsælum húðmeðferðum? Sameinaðu hreyfingu og hlátur í Lyfjugöngunni Endurkast sólarljóss jafn skaðlegt og beint sólarljós X-ið ógnar en Bylgjan ekki? Heldur FM957 bikarnum? Nýja línan frá Barton Perreira kynnt í Auganu Óreiðulaus eldhús með þráðlausu kerfi KitchenAid Verum viðbúin með góðri vörn þegar sólin skín! Magnesíum potturinn í Laugardalslaug snýr aftur! Bill Barton kemur í Augað í Kringlunni Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Sjá meira