Leiðtogi katalónskra sjálfstæðissinna handtekinn í Þýskalandi Ingvar Þór Björnsson skrifar 25. mars 2018 11:11 Carles Puigdemont tók við sem forseti héraðsstjórnar Katalóníu í janúar 2016. Honum var vikið úr stóli í október síðastliðinn. Vísir/AFP
Carles Puigdemont, fyrrverandi forseti heimastjórnarinnar í Katalóníu, var handtekinn af þýsku lögreglunni við landamæri Danmerkur í dag. AP fréttaveitan greinir frá þessu. James Alonso-Cuevillas, lögmaður Puigdemont, staðfesti í samtali við AP að þýska lögreglan hafi handtekið hann í dag þegar hann var á leið frá Danmörku til Þýskalands. Þá segir hann að Puigdemont hafi verið á leið aftur til Belgíu en hann hefur hafst við í Brussel eftir að spænsk yfirvöld gáfu út handtökuskipun á hendur honum í kjölfar sjálfstæðisyfirlýsingar katalónska þingsins. Spænsk stjórnvöld gáfu út alþjóðlega handtökuskipun á hendur Puigdemont þegar hann var í Finnlandi fyrr í mánuðinum. Um 25 aðskilnaðarsinnar hafa verið ákærðir eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu síðastliðinn október en spænskir dómstólar úrskurðuðu atkvæðagreiðsluna ólöglega.Síðastliðið föstudagskvöld kom til óeirða í Katalóníu eftir að spænskir dómstólar úrskurðuðu fimm leiðtoga katalónskra sjálfstæðissinna í varðhald, þar á meðal Jordi Turull, forsetaefni þeirra.
Tengdar fréttir Puigdemont er sagður hafa stungið af til Belgíu Alþjóðleg handtökuskipun var gefin út á hendur fyrrum forseta heimastjórnar Katalóníu. Hann var staddur í Finnlandi þegar handtökuskipunin var gefin út en samkvæmt finnskum þingmanni er hann farinn úr landi. 24. mars 2018 18:07 Frambjóðandi katalónskra aðskilnaðarsinna handtekinn Jordi Turull, forsetaefni aðskilnaðarsinna í Katalóníu, hefur verið handtekinn. Finnsk stjórnvöld hafa fengið handtökuskopun á hendur fyrrverandi forseta héraðsstjórnarinnar. 24. mars 2018 10:45 Puigdemont virtist játa ósigur Puigdemont játaði því í gær að skilaboðin væru frá honum en sagði að þrátt fyrir það væri hann best til þess fallinn að leiða Katalóníu. 1. febrúar 2018 07:00 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Fleiri fréttir „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Sjá meira
Puigdemont er sagður hafa stungið af til Belgíu Alþjóðleg handtökuskipun var gefin út á hendur fyrrum forseta heimastjórnar Katalóníu. Hann var staddur í Finnlandi þegar handtökuskipunin var gefin út en samkvæmt finnskum þingmanni er hann farinn úr landi. 24. mars 2018 18:07
Frambjóðandi katalónskra aðskilnaðarsinna handtekinn Jordi Turull, forsetaefni aðskilnaðarsinna í Katalóníu, hefur verið handtekinn. Finnsk stjórnvöld hafa fengið handtökuskopun á hendur fyrrverandi forseta héraðsstjórnarinnar. 24. mars 2018 10:45
Puigdemont virtist játa ósigur Puigdemont játaði því í gær að skilaboðin væru frá honum en sagði að þrátt fyrir það væri hann best til þess fallinn að leiða Katalóníu. 1. febrúar 2018 07:00