Njarðvík hefur samið við Mario Matasovic og mun hann leika með liðinu í Dominos-deild karla á næstu leiktíð. Frá þessu er greint á heimasíðu Njarðvíkinga í dag.
Þar segir jafnframt að Mario, sem er króatískur, sé 203 sentimetra miðherji sem hafi leikið með U18 ára landsliði Króata á sínum tíma en Mario er 25 ára gamall í dag.
Hann hefur leikið í háskólaboltanum í Bandaríkjunum undanfarin ár þar sem hann var meðal annars fyrirliði hjá Sacret Heart síðastliðinn vetur.
Mario mætir til landsins um mánaðarmótin ágúst-september og byrjar þá að æfa með Njarðvíkingum sem munu mæta með töluvert breytt lið til leiks frá síðustu leiktíð. Einar Árni Jóhannsson er tekinn við liðinu og tók með sér Ólaf Helga Jónsson úr Þorlákshöfn auk þess sem Jón Arnór Sverrisson er kominn til Njarðvíkur.
Króatískur miðherji til Njarðvíkur
Arnar Geir Halldórsson skrifar

Mest lesið


Tottenham vann Evrópudeildina
Fótbolti


Guardiola hótar að hætta
Enski boltinn





Beckham varar Manchester United við
Enski boltinn

Þeir bestu ( 10.-9. sæti): Hörkutól með hæfileika
Íslenski boltinn