Óttarr Proppé: Ýmsir í flokknum haft áhyggjur af samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 9. janúar 2017 00:01 Óttarr Proppé og S. Björn Blöndal oddviti Bjartrar framtíðar í Reykjavík. Vísir/ Hanna
Ýmsir í röðum Bjartrar framtíðar hafa haft áhyggjur af stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn að sögn Óttars Proppé, formanns flokksins. Nefnir hann í því samhengi fyrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, sem missti meirihluta sinn í kosningum í október í kjölfar Panama skjalanna. Stjórn Bjartrar framtíðar samþykkti stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar nú í kvöld. Kosningin var á þá leið að 51 sögðu já, einn skilaði auðu og 18 sögðu nei. Óttari segist líða ágætlega eftir fundinn en Björt framtíð fundaði lengst stjórnarflokkanna. „Við erum auðvitað komin með stjórnarsáttmála sem við erum búin að vinna hörðum höndum að sumu leyti alveg frá kosningum og þá voru heil miklar umræður um hann. Hann var samþykktur af stjórninni og sum sé þátttaka Bjartrar framtíðar í ríkisstjórn.“Yfirgnæfandi stuðningur og engin átökAðspurður hvort að átök hafi verið innan flokksmeðlima á fundinum segist hann ekki vilja nota orðið átök þar sem þetta hafi meira verið í átt við efasemdir um ákveðna hluti í sáttmálanum og í ríkisstjórn. „Það má segja að umræðan hafi verið í rökréttu samhengi við helstu áherslur flokksins,“ segir Óttarr og nefnir að menn séu sáttir við niðurstöðuna miðað við yfirgnæfandi stuðning við sáttmálann. Aðspurður hvort að efasemdir í röðum flokksmanna valdi honum áhyggjum segir hann það ekki vera svo og nefnir hann í því samhengi að Björt framtíð sé lifandi og lýðræðislegur flokkur. „Við erum auðvitað á sérstökum stað. Við erum í fyrsta skipti í þeirri aðstöðu að ganga í ríkisstjórn og við vitum það að við erum minnsti flokkurinn í þeirri stjórn og það er alveg skiljanlegt að fólk hugsi að þetta sé mjög stórt verkefni framundan,“ segir Óttarr. Skattaskjólsskýrsluna bar á gómaAðspurður um skýrslu eigna Íslendinga í skattaskjólum segir Óttarr að hún hafi borið á góma stjórnarfólks flokksins. „Menn voru að velta því fyrir sér og eins voru menn að velta fyrir sér þessari stöðu að vera litli flokkurinn í samstarfi við stóra flokkinn og svo framvegis en það var nú svona eins og maður átti von á,“ segir Óttar og bætir við að aðalatriðið sé að Björt framtíð líti svo á að þau séu að ganga inn í ríkisstjórnarsamstarf sem sé í takt við niðurstöðu kosninga. Hann segir að Björt framtíð muni berjast fyrir sínum áherslumálum á borð við náttúruvernd og heilbrigðismál. En það muni koma í ljós næstu daga hvar þau muni mest ná að beita sér. Óttarr segir í samtali við fréttastofu að hugmyndir um ráðherrastóla hafi verið ræddar en að hann vilji ekki greina frá því að svo stöddu.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Bilun í Herjólfi Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira