Leynileg lyfjagjöf á leikskólum skekur Kína Stefán Ó. Jónsson skrifar 24. nóvember 2017 06:44 Mótmælendur voru í öngum sínum fyrir utan leikskólann í gær. whatsonweibo
Stjórnendur leikskóla í kínversku höfuðborginni Peking eru sakaðir um að bólusetja börn og gefa þeim hvers kyns lyf án vitundar foreldranna. Málið hefur vakið mikla athygli og reiði í Kína og rannsaka yfirvöld nú málið. Leikskólinn er hluti af mikilsmetinni keðju sem rekur leikskóla víðsvegar um Kína. Hið minnsta átta börn á leikskólanum eru talin hafa verið sprautuð með óræðu efni. Foreldrar barnana segjast hafa rekið augun í för eftir nálar á börnunum sínum á síðustu dögum og ákveðið að bera saman bækur sínar. Þeir segja jafnframt að börnunum hafi verið gefin lyf og síróp fyrir hvíldartímana á leikskólunum.Mótmælendur fylgdust með fréttaflutningi er þeir stóðu fyrir utan leikskólann.SCMPÞá er haft eftir nokkrum foreldrum að börn þeirra hafi verið beðin um að afklæðast í leikskólanum, sem vakið hefur grun um kynferðislega áreitni. Hópur foreldra safnaðist saman fyrir utan leikskólann í gær og mótmælti. Talsmaður mótmælenda sagði í samtali við þarlenda miðla að þá grunaði að nálarnar hefðu verið notaðar til að refsa börnunum. Lögreglan hefur lagt hald á myndbandsupptökur úr leikskólanum og þá hefur þremur kennurum verið sagt upp störfum. Forsvarsmenn leikskólakeðjunnar hafa beðist „innilegrar afsökunar“ á málinu sem hefur vakið „umtalsverðar áhyggjur,“ eins og það er orðað á vef breska ríkisútvarpsins. Stjórnvöld í Peking ætla jafnframt að rannsaka alla leikskóla og daggæslur höfuðborgarinnar.
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira