Rjúpnaskyttur beðnar að vara sig á veðrinu Stefán Ó. Jónsson skrifar 17. nóvember 2017 06:13 Það er betra fyrir rjúpnaskyttur að búa sig vel í dag. Vísir/Vilhelm
Veðurstofan varar rjúpnaskyttur, sem eiga leið um Austurland að Glettingi og Austfirði, við hvassviðri, éljum og vindhviðum sem gætu farið yfir 35m/s. Það geti verið varasamt að ferðast í gegnum þá vindstrengi. Færð gæti spillst á fjallvegum, ekki síst á Austurlandi, og biður Veðurstofan þá sem verða á ferðinni á heiðum og fjöllum, eins og rjúpnaskyttur, að taka til greina að það getur orðið hvasst og blint í éljum. Gul viðvörun er í gildi á fyrrnefndum tveimur svæðum sem og á Suðausturlandi. Þar er búist við norðvestan 15 til 23 m/s og verður hvassast austan Öræfa. Vindhviður við fjöll gætu þannig farið yfir 35 m/s. Þó verður mun hægari vindur í öðrum landshlutum, stöku él með vesturströndinni en bjartviðri sunnanlands. Hiti nálægt frostmarki við ströndina en frost 2 til 7 stig inn til landsins.Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag:Norðvestan 3-8 m/s, en norðan 8-13 austast á landinu. Víða bjartviðri en él við norðurströndina. Frost 0 til 8 stig, mest inn til landsins. Á sunnudag:Norðaustan 3-8 en austan 8-13 syðst á landinu. Léttskýjað sunnan heiða, en dálítil él með norður- og austurströndinni. Áfram kalt í veðri. Á mánudag:Norðlæg eða breytilega átt 5-13 m/s, hvassast austast. Stöku él við sjávarsíðuna norðanlands en bjart fyrir sunnan. Frost 0 til 8 stig, kaldast inn til landsins. Á þriðjudag:Gengur í norðan 10-18 norðan og austanlands, hvassast á annesjum, en 5-10 sunnantil. Éljagangur og síðar dálítil snjókoma fyrir norðan en léttskýjað syðra. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag og fimmtudag:Útlit fyrir ákveðna norðaustan átt með snjókomu um landið norðan- og austanvert. En léttskýjað sunnan- og vestanlands. Hiti nálægt frostmarki við ströndina en vægt frost inn til landsins.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Sjá meira