Haustspá Siggu Kling - Vogin: Þú ferð að leita að fyllingu í hjarta þínu 1. september 2017 09:00
Elsku Vogin mín. Þó að það sé svolítil ókyrrð í hjarta þínu og tilfinningunum þá er orkan í kringum þig og lífið alveg með besta móti. Möguleikarnir eru margir en þú þarft bara að átta þig á að kvíðahnúturinn í hjarta þínu er mögulega ekki út af neinu sem þú getur skýrt. En þessi hnútur getur valdið pirringi og fljótfærni svo segðu ekkert við fólk í kringum þig nema þú sért búin að hugsa vel hvað þú meinar raunverulega með orðum þínum. Haustmánuðir munu koma þér í rétt ferli og róa kvíðann. Þegar þú hefur loks fundið leiðir til að blása kvíðann á brott þá finnur þú það jafnvægi sem þú verður að hafa til þess að fúnkera og skipuleggja lífið. Að vera Vog er ekki auðvelt því þér fylgir svo mikill kraftur; þú átt líka svo auðvelt með að magna upp kraft reiðinnar og þar af leiðandi líka kraft gleðinnar og hamingjunnar. Skilaboðin eru samt þau að þú átt auðveldara en önnur merki með að þjálfa huga þinn til gleðinnar á stuttum tíma og snúa erfiðleikum þér í hag. Að vera þú þýðir að Yin og Yang þurfa að vera í jafnvægi. Smáatriði eiga ekki að hafa áhrif á þig á neinn máta því þú ert svo hátt yfir það hafin. Og hvort sem þú ert í sambandi eða á lausu þá gælir þú of oft við það að ástina sé að finna annars staðar. Þú lætur gjarnan hugann reika í burtu frá þeim sem hæfa þér best. Þú blómstrar mest þegar hlutirnir eru stabílir þótt þú sért orka hugmynda og framfara. En moldin þarf að vera frjósöm til þess að þú blómstrir eins og þú þarft. Haustmánuðir gefa þér það að þú ferð að leita að fyllingu í hjarta þínu og lífsgæðum. Þegar líða tekur á haustið tekur þú þá stórt stökk og lendir svo gjörsamlega á fótunum, þá mun þér finnast eins og þú hefðir fyrir löngu átt að taka þetta stökk! Heppnin er með þér í samfloti því það eru svo margir sem vilja þinn veg sem mestan vegna þess að þú hefur skilið eftir þig margar skilyrðislausar gjafir til fólks í kringum þig. Núna verður uppskeran miklu betri en síðustu mánuði. Þér er mjög annt um útlit þitt og þínir nánustu sjá það um leið ef hugur þinn er dapur. En þú ert svo mikill „trendsetter“ í lífinu að fólk reynir að líkja eftir því sem þú gerir, hversu töff er það? Ef þú ert ung Vog að lesa þetta, mundu þá að þú ert óhörðnuð en samt alltaf að hugsa um að byggja upp góðan og sterkan stíl. Ég predika það að við séum fyrirtæki svo þar af leiðandi þarftu að skoða það fyrirtæki sem ert þú sjálf og hverju það áorkar. Skoðaðu hvaða nafn það hefur, er það nógu sterkt fyrir þig og þína framtíð? Það skiptir svo miklu máli fyrir þig hvað þú heitir, og ef þú hefur verið óánægð með þá orku sem nafnið gefur þér þá skaltu íhuga að taka þér kannski bara annað nafn með. Sumir segja að ástæðan fyrir því að börn gráti óeðlilega mikið og séu óvær þegar þau eru lítil geti verið vegna þess að þau heiti einfaldlega ekki réttu nafni, skemmtileg speki. Þú ert að komast í svo miklu meiri tengsl við sálina þína og réttlætisgyðjuna sem í henni býr. Setningin þín er: Ég fer mína einstöku leið - I Did It My Way ( Frank Sinatra)Frægir í Voginni: Kári Árnason landsliðsmaður, Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Lilja Dögg Alfreðsdóttir alþingiskona, Ósk Gunnarsdóttir útvarpskona, María Einarsdóttir ritari stjörnuspánnar, Arnþrúður Karlsdóttir útvarp Saga, Skúli Mogensen, Hulda Hólmkelsdóttir fréttakona, Walter Matthau, Olavia Newton John, Ragga Gísla, Steinn Steinarr, Margret Thatcher, Ragnheiður Elín Árnadóttir, minn meistari.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið Bakaríið í beinni útsendingu Lífið Fleiri fréttir „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Sjá meira