Júlíspá Siggu Kling – Vogin: Hentu öllu Excel-dæmi og tvistaðu út sumarið 7. júlí 2017 09:00
Elsku Vogin mín, þú glansar eins og regnboginn og engum dettur í hug að þú eigir við einhverja erfiðleika að etja. Þú lítur yfirleitt út eins og forsíðan á Vogue, en ef ekki þá færðu athugasemdir. Þú þarft að hafa hlutina spennandi og reynir þannig að skora á sjálfa þig einum of oft. En hafðu það í huga að það skiptir ekki öllu máli hversu oft þú gengur á Esjuna, heldur hversu minnisstætt það er. Þú gerir þá kröfu til sjálfrar þín að hafa allt í röð og reglu, en í guðanna bænum slepptu því. Þetta er það eina sem getur virkilega pirrað þig þó að aðrir elski þig fyrir það. Ég skora á þig að breyta um takt og koma á óvart, bæði sjálfri þér og öðrum. Hentu öllu Excel-dæmi og tvistaðu út sumarið. Þetta verður mjög fjörugt sumar sem gefur þér tækifæri til að sýna þitt sanna eðli. Ekki taka afgerandi afstöðu með eða á móti fólki, reyndu að sýna jafnlyndi í því. En ég þoli samt ekki orðið reyndu, svo gerðu það bara. Fólk hlustar á hvað þú segir vegna þess hversu vel þú berð þig. Þú lætur fólk ekki vita hvaða hnökrar hafa verið á lífi þínu. Hættu að skipta þér af því sem virkilega kemur þér ekki við og þá verður líf þitt auðveldara. Það má segja að þú sért oftast heppin með maka, eða í ástamálum, en þú átt það til að finna bara út það leiðinlega sem makar eða kærustur hafa upp á að bjóða. Mundu það að í ástinni erum við tvö tré í garði en ekki sama tréð. Gerðu það sem þú vilt, en gefðu kærasta þínum eða maka frelsi til að gera það sem hann eða hún vill, það er svo leiðinlegt að vera stjórnsöm Vog. En um leið og þú gefur öllum frelsi í kringum þig til að vera þeir sem þeir eru þá birtist ástin í þeirri mynd sem þú vilt hafa hana. Umhverfið og aðrir hafa of mikil áhrif á þig. Farðu aftur til fortíðar og skoðaðu í raun og veru hver þú ert, í því verður kraftur þinn fólginn. Þetta sumar og haust er svo mikilvægt fyrir þig, elsku Vog, að hleypa barninu út og vera ekki of fullorðinsleg eða hneykslunargjörn yfir því sem er að gerast í kringum þig. Ef þú hneykslast á öðrum muntu kalla þannig erfiðleika yfir þig. Þú átt eftir að hagnast mikið á dugnaði þínum og hugmyndum, það gæti tekið nokkra mánuði en þú ert á réttri braut. Í ástamálum, fyrir þá sem eru á lausu, er mikilvægt að skoða líka þær manneskjur sem eru í raun og veru ekki þín týpa. Gefðu fleirum séns, það vilja allir hanga með þér því þú ert alltaf manneskjan sem sker sig úr fjöldanum og mann langar til að hafa nálægt sér! Mottóið þitt er: Ef þú ættir bara ár eftir ólifað, hverju myndirðu þá stefna að? Þetta er áskorunin þín, því þú dafnar best undir áskorunum. Ást og friður, Sigga Kling Frægir í Voginni: Kári Árnason landsliðsmaður, Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Lilja Dögg Alfreðsdóttir alþingiskona, Ósk Gunnarsdóttir útvarpskona, María Einarsdóttir ritari stjörnuspánnar, Arnþrúður Karlsdóttir útvarp Saga, Skúli Mogensen, Hulda Hólmkelsdóttir fréttakona, Walter Matthau, Olavia Newton John, Ragga Gísla, Steinn Steinarr, Margret Thatcher, Ragnheiður Elín Árnadóttir, minn meistari.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Hver þarf pizzu þegar Laufey er komin á sviðið? Gagnrýni Þau flottustu og mest púkó á Óskarnum Tíska og hönnun Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Lífið Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Lífið Íslendingur fagnaði Óskarsverðlaunum Lífið One Battle After Another bar sigur úr býtum Bíó og sjónvarp Súperstjarna tískuheimsins klæddi Laufeyju Tíska og hönnun Óþekkjanleg á Óskarnum Tíska og hönnun Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“ Lífið Bæði fyrsta konan og svarta manneskjan til að vinna Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Hefur safnað sjö milljónum í minningu Jökuls Íslendingur fagnaði Óskarsverðlaunum Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“ Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Uppljómun í Kaupmannahöfn breytti lífinu Krakkatía vikunnar: Hljóð, fróð og ljóðaflóð Leitaði aftur til Stígamóta eftir að gömul sár gerðu vart við sig Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Hvernig er hægt að elska foreldrið sem hefur sært mann? „Komum okkur fyrir í Hugrekkislestinni“ Fréttatía vikunnar: Fótur, fit og Gunnar Nelson „Viljum alls ekki fá fólk hingað inn og skamma það“ Gauragangur í Menntaskólanum að Laugarvatni Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Flughræddur Dóri DNA fékk hrós frá flugfreyju Sigríður Dögg komin í ömmuklúbbinn Andar í burtu kvíðann og drekkur te til að slá á sykurþörfina Fimmta dóttirin skírð Ozzy Gísli Marteinn rís upp í krafti sýklalyfja Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Pearl Jam á móti sjókvíaeldi á Íslandi Finnbogi hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin fyrir Skjálfta Trúlofun slitið, forræðisdeila hafin og lögreglu blandað í málið Íslensk ungmenni fá sendar nektarmyndir í hefndarskyni Skíðaferðin til Sviss endaði á spítala á fyrsta degi Djammið lifir á Prikinu Lýsir yfir stuðningi við Hafdísi Sjá meira