Hreiðar Levý á heimleið: Flytur til Reykjavíkur og ætlar í fasteignabransann Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. febrúar 2017 17:00 Hreiðar Levý Guðmundsson spilar aftur á Íslandi. vísir/eyþór
Hreiðar Levý Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður í handbolta, er á heimleið frá norska úrvalsdeildarliðinu Halden en hann er búinn að spila sinn síðasta leik fyrir félagið. Markvörðurinn er meiddur á hné og snýr því aftur til Íslands en hann er með samning út næsta tímabili. Hann og félagið hafa komist að samkomulagi um að hann yfirgefi Noreg, ári á undan áætlun. „Ég er með heimþrá og vil ég vera nær kærustunni og börnunum. Ég hef verið á ferðalagi í tólf ár og einbeitt mér bara að handboltanum. Svo er ég líka meiddur þannig það var auðveld ákvörðun að fara aftur heim til Íslands,“ segir Hreiðar í viðtali við Ha-halden.no. Hreiðar var kominn heim úr atvinnumennsku og að spila með Akureyri í Olís-deildinni þegar einstakt tilboð um að fara til Halden barst. Stuðningsmennirnir söfnuðu sjálfir fyrir markverðinum og náðu að safna tæpum tveimur milljónum króna. „Það er kominn tími til að finna út hvað ég ætla að gera þegar ég verð stór,“ segir Hreiðar í léttum dúr en hann ætlar að flytja til Reykjavíkur og halda áfram að spila. „Planið er að flytja til Reykjavíkur og spila tvær leiktíðir í viðbót á meðan ég mennta mig sem fasteignasali,“ segir Hreiðar Levý Guðmundsson. Silfurdrengurinn fer í aðgerð vegna meiðslanna á næstunni en segist verða klár fyrir næstu leiktíð. Nú má væntanlega búast við miklu kapphlaupi liðanna í Olís-deildinni um undirskrift þessa frábæra markvarðar.
Handbolti Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Sjá meira