Ísland Allt Þorgrímur Sigmundsson skrifar 21. október 2017 08:00 Miðflokkurinn er nýtt róttækt stjórnmálaafl sem leitar skynsamlegustu lausnanna sama hvort þær lausnir flokkast sem hægri eða vinstri. Stjórnmálaafl sem hefur kjark til að ryðjast í gegnum þær hindranir sem kerfið getur verið þegar mikilla breytinga er þörf. Ísland Allt er aðgerðaráætlun sem Miðflokkurinn hefur lagt upp með til að ná mörgum þeirra markmiða. Við ætlum að snúa margra áratuga dýrri vörn í arðbæra sókn. Við ætlum að innleiða skattalega hvata fyrir fólk og fyrirtæki utan höfuðborgarsvæðisins. Við ætlum að lækka tryggingagjaldið og lækka það meira fyrir fyrstu 10 starfsmenn fyrirtækis sem aftur hentar sérstaklega vel fyrir mörg landsbyggðar-og nýsköpunarfyrirtæki. Við ætlum að efla á ný heilsugæslu og sérfræðilækningar á landsbyggðinni. Við ætlum að gera átak í byggingu þjónustuíbúða, bæta heimahjúkrun og fjölga hjúkrunarrýmum. Við viljum og ætlum að endurgreiða virðisaukaskatt af byggingu húsnæðis á „köldum svæðum“ en víða á landinu er skortur á leiguhúsnæði þar sem ekki hefur verið byggt svo nokkru nemi jafnvel árum saman og því róttækra aðgerða þörf til að örva nýframkvæmdir. Við ætlum að niðurgreiða innanlandsflug vegna þess að allir í samfélaginu eiga rétt á að geta sótt sér opinbera þjónustu og segja má að flugsamgöngur sé hið íslenska lestarkerfi. Tryggja þarf að sú niðurgreiðsla skili sér í lækkun fargjalda til notenda en verði ekki styrkur til flugfélaga. Það munum við gera. Eitt af lykil atriðum til að þessar nauðsynlegu samgöngu bætur virki sem best fyrir landsbyggðina er að tryggja flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni og að þar rísi samgöngumiðstöð fyrir alla landsmenn. Það ætlum við að gera. Við ætlum að gera ríkinu auknar skyldur í að uppfylla ákveðið þjónustustig um land allt. Við verðum og ætlum að eyða óvissu í ferðaþjónustu og tryggja samkeppnishæfni hennar og því eðlilegt að „kaldari svæði“ njóti skattalegshagræðis svæðunum og landinu öllu til heilla. Við ætlum að stjórna heildaruppbyggingu landsins frá einum stað svo ábyrgðin sé alveg skýr. Sumt af þessu er róttækt og það verða hindranir. En lausnirnar eru til og þær kalla á pólitískan vilja, kjark, þor og úthald fyrir Ísland Allt.Höfundur skipar 3. sætið á M-lista Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Dóttir mín – uppgjör eineltis Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir Skoðun Hér er elíta, um elítu, frá elítu, til elítu Ragnar Kjartansson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Að fortíð skal hyggja Guðrún Jónsdóttir Skoðun Ef Landsvirkjun verður ekki seld vitum við hvers vegna Ögmundur Jónasson Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir Skoðun Vitundarvakning um auðlindir þjóðar Halla Hrund Logadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Skoðun Auðkenni þarf að passa upp á Eva Valdís Jóhönnudóttir skrifar Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Hver er besti skólastjórinn? Aðalheiður Björk Olgudóttir skrifar Skoðun Vofa húsagans býsnast enn Haukur Már Helgason skrifar Skoðun Nokkrar staðreyndir um Ísland, Katrínu og Gaza Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Til þeirra sem hyggjast kjósa Katrínu Jakobsdóttur Guðlaugur Bragason skrifar Skoðun Katrín og kvenhatrið Ólafur Sveinsson skrifar Skoðun Bessastaðir eru ekki fyrir byrjendur Þorbergur Þórsson skrifar Skoðun Ég vil Baldur og því kýs ég Baldur Ólafur Helgi M. Ólafsson / Starína skrifar Skoðun Inngönguspáin Eygló Halldórsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar