Gísli Þorgeir búinn að semja við Kiel Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. desember 2017 10:32 Gísli Þorgeir Kristjánsson er á leið til Kiel. vísir/anton brink
Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikmaður FH í Olís-deild karla í handbolta, er búinn að semja við þýska stórliðið Kiel til þriggja ára en hann gengur í raðir félagsins næsta sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu Kiel. Þetta 18 ára undur fór á kostum í úrslitakeppninni í vor og hefur verið frábær með FH í vetur. Hann fékk eldskírn sína með íslenska landsliðinu í síðasta mánuði þegar að Ísland spilaði tvo vináttuleiki við Svíþjóð. Gísli er í 28 manna leikmannahópi Geirs Sveinssonar fyrir EM 2018 í Króatíu og gæti spilað á sínu fyrsta stórmóti í janúar. Kiel hefur fylgst grannt með Gísla undanfarin misseri en meiðsli leikmannsins unga í sumar komu í veg fyrir að hann skrifaði undir samning við Kiel þá. Gísli fór til Kiel í síðustu viku með föður sínum Kristjáni Arasyni þar sem hann gekkst undir læknisskoðun og samdi í kjölfarið við félagið sem er það sigursælasta í sögu þýska handboltans. Gísli fetar í fótspor annars FH-ings, Arons Pálmarssonar, sem fór frá Hafnafjarðarliðinu til Kiel árið 2009 og vann Þýskalandsmeistaratitilinn fimm sinnum og Meistaradeildina tvívegis með Kiel.
Olís-deild karla Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Fleiri fréttir Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Sjá meira