Tónlist í jólapakkann ekki alveg liðin tíð Stefán Þór Hjartarson skrifar 6. desember 2017 11:00 Hljómsveitin Maus um það leyti þegar Lof mér að falla að þínu eyra kom út. Endurútgáfa þeirrar plötu er alveg frábær jólagjöf.
Nokkrar sveitir gáfu í ár út sérstaka viðhafnarútgáfu af sínum vinsælustu verkum á vínylplötu. Maus sendi frá sér endurútgáfu af Lof mér að falla að þínu eyra, Kolrassa krókríðandi af Drápu og Botnleðja af Fólk er fífl. Það verður spennandi að fylgjast með hvort fleiri fylgi í fótspor þeirra á næstunni, enda af nógu að taka. Vínyllinn fór að koma sterkur inn aftur fyrir nokkrum árum og tók þá raunar fram úr geislaplötunni. Það er erfitt að segja hver ástæðan fyrir því er – líklega eru þær margar og fylgja líklega falli tónlistarsölu, þó að það kunni að hljóma mótsagnakennt. Vínylplötur eru oft eigulegir gripir og það er það sem fólk saknar eftir að útgáfa tónlistar færðist yfir í stafrænt form, þ.e.a.s. þess að geta haldið á einhvers konar grip.Páll Óskar keyrði Kristalsplötuna sína heim til fólks í ár. Vafalaust verður hún í nokkrum jólapökkum. Vísir/EyþórSafnað fyrir útgáfu Einhverjir hafa brugðið á það ráð að safna fyrir útgáfu á plötum sínum. Þá er notast við söfnunarsíður eins og Karolina Fund þar sem aðdáendur geta styrkt útgáfuna – raunar forkeypt plötuna og síðan fengið hana upp í hendurnar um leið og hún kemur úr prenti (ef safnarinn nær takmarki sínu það er að segja). Ný Dönsk safnaði fyrir nýjustu plötunni sinni, sem auðvitað tókst og úr varð platan Á plánetunni jörð. Páll Óskar sendi frá sér Kristalsplötuna en hann safnaði reyndar ekki fyrir henni en tók niður pantanir áður en hún kom út og sentist svo um landið með eintökin. Snorri Helgason safnaði fyrir plötunni Margt býr í þokunni en um er að ræða hálfgert gæluverkefni sem Snorri hefur verið að vinna að síðustu fjögur árin.Gunnar Þórðarson gefur út heiðarlegan geisladisk og ekkert kjaftæði.Vísir/GVAEkkert kjaftæði Sumir þurfa svo ekkert að vera að pæla í einhverjum svona hlutum og gefa bara út heiðarlega geisladiska sem hvort sem er seljast í bílförmum enda stór aðdáendahópur bak við sem er ekkert endilega hrifinn af einhverju Spotify bulli og söfnunum og svona. Björgvin Halldórsson sendir frá sér Þig dreymir kannski engil en það er safn af ballöðum Bós sem eru auðvitað fjöldamargar. Geir Ólafs setur Las Vegas jólasýninguna sína á geisladisk og er það líklega keppinautur um jólagjöf ársins. Eyþór Gunnarsson og Tómas R. gefa út sameiginlega plötu, Innst inni. Bubbi sendi frá sér plötuna Túngumál, en hún kom einnig á vínyl. Gunnar Þórðarson gefur út sextán glæný lög undir heitinu 16 – en þar veita margir af ástsælustu söngvurum og textahöfundum þjóðarinnar honum aðstoð, eins og til dæmis Bragi Valdimar, Guðmundur Andri Thorsson, Vigdís Grímsdóttir, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Ómar Ragnarsson, Sigríður Thorlacius, Jóhanna Guðrún og Stefán Hilmarsson.
Mest lesið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Fleiri fréttir Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Sjá meira