Heitur Teitur: Þrír 10 marka leikir á HM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. ágúst 2017 16:00 Teitur skoraði alls 46 mörk í fimm leikjum í riðlakeppninni. mynd/facebook-síða ihf
Selfyssingurinn Teitur Örn Einarsson hefur farið mikinn á HM U-19 ára landsliða í handbolta sem fer fram í Georgíu þessa dagana. Íslenska liðið hefur leikið vel á HM og vann alla fimm leiki sína í B-riðli.Íslensku strákarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu eins marks sigur á Þjóðverjum, 28-27, í morgun. Orri Freyr Þorkelsson skoraði sigurmarkið úr vinstra horninu í þann mund sem leiktíminn rann út. Teitur var markahæstur í íslenska liðinu í leiknum en hann skoraði 10 mörk, þar af fjögur af vítalínunni.Teitur er jafnan öruggur á vítalínunni.mynd/hsíÞetta var þriðji 10 marka leikur Teits á HM. Hann skoraði einnig 10 mörk í sigrunum á Japan og Síle. Selfyssingurinn skoraði „aðeins“ sjö mörk í stórsigrinum á Georgíu en gegn Alsír var hann með níu mörk. Teitur skoraði alls 46 mörk í leikjunum fimm í B-riðli. Nítján þeirra komu af vítalínunni. Samkvæmt opinberri tölfræði mótsins hefur Teitur gefið 11 stoðsendingar en það er óhætt að fullyrða að þær séu miklu fleiri. Teitur, sem verður ekki 19 ára fyrr en í næsta mánuði, var í lykilhlutverki hjá Selfossi í Olís-deild karla á síðasta tímabili. Hann skoraði 133 mörk í 25 deildarleikjum og var þriðji markahæsti leikmaður Selfoss á eftir Elvari Erni Jónssyni og Einari Sverrissyni. Íslenska U-19 ára liðið mætir annað hvort Svíþjóð eða Barein í 16-liða úrslitum á HM á miðvikudaginn.
Handbolti Tengdar fréttir Orri Freyr tryggði Íslandi sigur á Þýskalandi og sigur í riðlinum | Sjáðu markið Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 19 ára og yngri vann frábæran sigur á Þjóðverjum, 28-27, í síðasta leik sínum í B-riðli á HM í Georgíu í morgun. 14. ágúst 2017 09:45 Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Fótbolti FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira
Orri Freyr tryggði Íslandi sigur á Þýskalandi og sigur í riðlinum | Sjáðu markið Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 19 ára og yngri vann frábæran sigur á Þjóðverjum, 28-27, í síðasta leik sínum í B-riðli á HM í Georgíu í morgun. 14. ágúst 2017 09:45