Mikill skortur á fræðslu og forvörnum vegna áreitni á vinnumarkaði á Íslandi Lovísa Arnardóttir skrifar 7. desember 2017 06:00 Stjórnmálakonur voru þær fyrstu sem stigu fram á Íslandi með sögum um áreitni og ofbeldi. Á myndinni eru Heiða Björg Hilmisdóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir, Björt Ólafsdóttir og Rósa Björk Brynjólfsdóttir. vísir/anton brink
Síðastliðnar vikur hafa konur í stjórnmálum, sviðslistum, kvikmyndagerð og vísindum sent frá sér sameiginlegar yfirlýsingar um kynferðislega áreitni, ofbeldi og aðra óviðeigandi hegðun karlmanna í þeirra garð. Vinnustaðir og stofnanir, stéttarfélög og félagasamtök hafa brugðist við þessum yfirlýsingum kvenna með vilja til breytinga á verklagi og menningu á vinnustöðum, sem er þó eitthvað sem vinnustaðir áttu að vera byrjaðir að vinna að samkvæmt reglugerð nr. 1009 frá 2015. Í reglugerðinni er lögð áhersla á að innan hvers vinnustaðar sé stuðlað að forvörnum og aðgerðum gegn slíkri háttsemi.Rakel Davíðsdóttir, sálfræðingurVinnueftirlitið hefur leiðbeinandi hlutverk og eftirlitsskyldu í þessum málum. Stofnuninni ber að stuðla að og efla forvarnir og sjá til þess að atvinnurekandi grípi til viðeigandi úrbóta í vinnuumhverfinu þegar við á. „Þetta þarf að vera til staðar á öllum vinnustöðum á Íslandi en það er, eins og svo margt sem snýr að vinnuvernd, bara ekki til staðar,“ segir Jóhann Friðrik Friðriksson, sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu. „Ég veit að við þurfum að fara í heljarinnar átak á þessu sviði, við þurfum að fara í átak til að tryggja að vinnustaðir séu að fylgja lögum og reglum, við þurfum að tryggja að starfsmenn viti hvar þeir standa og hvar þeirra réttur liggur. Við þurfum að ýta undir að almenningur skilji til hvers er ætlast af vinnuveitendum og starfsmönnum. Þeir bera líka ábyrgð. Þetta helst allt í hendur,“ segir Jóhann Friðrik. Samkvæmt heimasíðu Vinnueftirlitsins eru 22 utanaðkomandi aðilar með vottun til að sinna slíkri þjónustu. Rakel Davíðsdóttir, sálfræðingur hjá Lífi og sál – Sálfræðistofu, segir að þau hafi fundið mun strax eftir að reglugerð var sett árið 2015, en núna, í kjölfar #metoo, sé talsverð eftirspurn eftir þjónustu þeirra. Hún hafði ekki tölur um hversu mikil aukningin er á milli ára eða mánaða en sagði þó að næstu vikur og mánuði væri mjög mikið að gera í þessu hjá þeim. „Forvarnarvinna hefur aukist töluvert, fræðsla um þetta málefni. Að við séum beðin um það og eins stuðningsviðtöl við fólk sem verður fyrir þessu,“ segir Rakel. „Þetta eru alls konar vinnustaðir og í öllum geirum,“ segir Rakel. „Við sjáum þetta í ýmsum birtingarmyndum. Mjög margir leita til okkar í forvarnarskyni og vilja sinna sinni skyldu. Síðan erum við líka að fá beiðnir um ráðgjöf og stuðningsviðtöl inni á vinnustöðunum. Ég held að það sé alveg hægt að segja að þetta sé að hafa áhrif. Að fólk þori frekar að koma fram.“ Rakel telur að #metoo sé að hafa mikil áhrif á vinnumarkaðinn. „Sumir eru bara mjög áhugasamir um að átta sig betur á þessu og skilja að mörk okkar eru ólík og það sem einum kann að finnast í lagi finnst öðrum kannski bara mjög óþægilegt,“ heldur Rakel áfram. „Við getum ekki leyft okkur að segja bara eins og kannski var gert áður fyrr: „Æ, hann er bara svona eða hvaða viðkvæmni er þetta.“ Svona viðhorf ganga ekki lengur. Það er þessi vitundarvakning í þjóðfélaginu.“
Birtist í Fréttablaðinu MeToo Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Stöðvuðu rekstur öryggisþjónustu og lokuðu þremur skemmtistöðum Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Innlent „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Innlent Áfram bongó í kortunum og nú um allt land Veður Fleiri fréttir Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Stöðvuðu rekstur öryggisþjónustu og lokuðu þremur skemmtistöðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Sjá meira