Á annað hundruð dauðsföll tengd við rafbyssur Kjartan Kjartansson skrifar 23. ágúst 2017 11:41 Rafbyssur eru ekki taldar banvænar ef þeim er beitt rétt. Engin opinber gögn eru hins vegar til um þá sem látast eftir stuð frá þeim. Vísir/AFP
Rafbyssur eru taldar hafa valdið eða átt þátt í dauða 150 manns í Bandaríkjunum. Rannsókn Reuters-fréttastofunnar sýnir að margir þeirra hafi verið óvopnaðir eða átt við geðræn vandamál að stríða. Fréttamenn Reuters fóru í gegnum gögn um dauða 1.005 manns sem hafa látist í Bandaríkjunum eftir að hafa verið stuðaðir með rafbyssum, að mestu leyti frá því snemma á síðasta á áratug. Fjórðungur þeirra sem létust voru í geðrofi eða þjáðust af taugasjúkdómi og í níu af hverjum tíu tilfellum voru fórnarlömbin óvopnuð. í fleiri en hundrað tilfellum var fólkið stuðað eftir að hringt hafði verið í neyðarlínu vegna bráðra veikinda. Reuters hefur eftir sjálfstæðum rannsakendum að rafbyssur séu sjaldnast banvænar þegar þeim er beitt rétt. Engin opinber gögn liggja hins vegar fyrir um notkun rafbyssna og engin bandarísk alríkisstofnun fylgist með dauðsföllum þar sem þær koma við sögu. Því er nær ómögulegt að meta hversu hættulegar byssurnar eru.Gögnin í mótstöðu við fullyrðingar TaserFyrirtækið Taser International sem framleiðir rafbyssurnar fyrir lögreglu hafnar því að stuð frá byssunum valdi dauða fólks. Í öllum tilfellum séu aðrar orsakir til staðar eins og lyfjaneysla, undirliggjandi sjúkdómar eða önnur valdbeiting lögreglu. Taser gegnst aðeins við því að 24 manneskjur hafi látist af völdum rafbyssna þess. Upplýsingar Reuters úr krufningarskýrslum hundruð manna sem létust eftir að hafa fengið stuð sýna hins vegar að í 153 tilfellum hafi rafbyssur verið taldar aðaldánarorsök eða að þær hafi átt þátt í dauða fólksins. Í flestum tilfellanna sem út af standa var dánarorsökin talin blanda hjarta- og annarra sjúkdóma, lyfjanotkunar og ýmissa annarra áverka. Fram kemur jafnframt að 90% þeirra um það bil 18.000 lögreglustofnana sem starfa í Bandaríkjunum notist við Taser-rafbyssur. Rætt hefur verið um að íslenskir lögreglumenn fái rafbyssur í nokkur ár. Þannig sagði Morgunblaðið frá því í fyrra að Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, hefði fundað með framkvæmdastjóra Taser, og að Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefði tekið málið upp á Alþingi.
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira