Hækkuðu eigin laun um 66 prósent Sveinn Arnarsson skrifar 19. maí 2017 07:00 Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri
Laun stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar hækkuðu um 66 prósent á síðasta ári. Lífeyrissjóðurinn er alfarið rekinn af lífeyrissjóðnum Stapa og því er stjórnin ekki með neinn starfsmann á sínum snærum. Þetta kom fram á síðasta aðalfundi lífeyrissjóðsins sem haldinn var á dögunum. Árslaun formanns stjórnar lífeyrissjóðsins, bæjarstjórans Eiríks Björns Björgvinssonar, hækkuðu á milli ára um 66 prósent, fóru úr 180 þúsund krónum í 300 þúsund. Á sama ári lækkaði raunávöxtun sjóðsins úr níu prósentum í rétt rúmlega tvö prósent. Aðrir aðalmenn í sjóðnum hækka úr 90 þúsund krónum í 150 þúsund. Auk Eiríks í stjórn sjóðsins eru oddvitar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar fyrir hönd Akureyrar auk tveggja stjórnarmanna frá Kili stéttarfélagi. Einnig var samþykkt að hækka árslaun stjórnarmanna lítillega fyrir árið 2017 á stjórnarfundinum. Stapi lífeyrissjóður sér um rekstur Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar í samræmi við samning sjóðanna þar um. Markmiðið með samningnum er að tryggja góðan rekstur LSA sem og góða þjónustu við sjóðfélaga. Framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs er jafnframt framkvæmdastjóri LSA. Ekki náðist í Eirík Björn Björgvinsson, bæjarstjóra á Akureyri, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaðamanns.Leiðrétting: Í upphaflegu fréttinni var talað um laun stjórnarmanna. Rétt væri að tala um árslaun stjórnarmanna til að koma í veg fyrir misskilning. Hér er um árslaun að ræða.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Geðrofslyf leysa hefbundin svefnlyf af hólmi Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Geðrofslyf leysa hefbundin svefnlyf af hólmi Logandi pottur Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Sjá meira