Sumarspá Siggu Kling - Nautið: Að vera í varnarstöðu boðar bara gott 2. júní 2017 09:00
Elsku Nautið mitt, það er búið að vera svolítið nautaat í kringum þig svo þér hefur fundist þú þurfa að verja þig með kjafti og klóm. Að vera í varnarstöðu boðar bara gott, það verður ekki skorað í þitt mark á meðan vörnin er góð. Þetta á sérstaklega við um maímánuð svo að júní gefur þér betri sýn og betra yfirlit. Þá sérðu að þú hefur breytt rétt og þó að það sé eitthvað eftir sem þú þarft að passa upp á er eins og sérstakur verndarengill vaki yfir þér og passi að þú verðir ekki fyrir neinu hnjaski. Það verður mikið um gjafir og gleði í sumar og eftirsjá er orðið sem þú þarft að kasta í ruslið. Að sjá eftir einhverju þýðir að það sé farið. Þegar eitthvað í lífi manns er farið þá hefur maður pláss fyrir nýjar og betri gjafir. Þú færð tilboð sem eiga þátt í að breyta lífi þínu. Og þú færð sömuleiðis framkvæmdaorku til að skipuleggja og gera líf þitt léttara. Það er mikilvægt fyrir þig að hefja hreinsun á huga og líkama til að skilja hvað sannar tilfinningar eru. Slepptu því að leika þér að eldinum og þar er ég bara að tala um tilfinningar og ástina! Þú ert framkvæmdamanneskja og þolir ekki þegar lífið stendur í stað. Þú átt það samt til að draga þig í hlé og fylla orku á tankinn, en það hjálpar þér að verða sterkari þegar á reynir. Þú ert að fara inn í rómantíska og skemmtilega tíma og mikið sannarlega væri það mikill ávinningur að skrifa dagbók, þó ekki væru nema þrjár setningar á dag, því það mun ýta á eftir þér og láta þig sjá að þú ert forystunaut og sýna þér úr hverju þú ert í raun gert. Þér á eftir að takast að halda jafnvægi milli vinnu, vinskapar og ástar og það er bara stórkostlegtMottó: Hamingjusamasta manneskjan er sú sem hugsar skemmtilegustu hugsanirnar.Fræg Naut: Aron Einar Gunnarsson fyrirliði íslenska knattspyrnulandsliðsins, Hannes Þór Halldórsson markvörður, Ari Freyr Skúlason landsliðsmaður, Svali Kaldalóns fjölmiðlamógúll, Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, rithöfundur og latikokkur, Ellý Ármanns fjölmiðlakona, Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri, Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður, Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Álfheiður Ingadóttir þingkona, Halldór Laxness, rithöfundur og skáld, Rúnar Freyr Gíslason leikari, Garðar Thor Cortes söngvari, Helga Möller söngkona, Katrín Tanja Davíðsdóttir crossfit-meistari, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona, Pétur Jóhann Sigfússon, Addi Exos dj-snillingur.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Fleiri fréttir Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Sjá meira