Sumarspá Siggu Kling - Vogin: Þarft að hefja einhvers konar uppgjör 2. júní 2017 09:00
Elsku Vogin mín, það er mjög mikil spenna í loftinu og ef þú notar hana rétt þá mun hún breytast í orku. Þú vinnur allra best undir pressu svo vertu ánægð og þakklát fyrir pressuna. Það verða mörg „wake up calls“ í kringum þig og þú finnur kraftinn koma, en þú þarft reyndar að ganga frá málum sem tengjast fólkinu í kringum þig fyrst. Það virðist vera sem þú þurfir að hefja einhvers konar uppgjör, illu er best af lokið. Kláraðu það sem þér finnst leiðinlegt því þá mun það að minnsta kosti ekki flækjast fyrir þér meira. Þú átt það til að vita ekki alveg hvernig þér á að líða, og þú spyrð þig gjarnan: „er ég ástfangin, er ég hamingjusöm í vinnunni, í lífinu?“ Þú ættir að skoða hvaða fjóra kosti þeir hafa sem þú elskar og hugsa frekar um þá en lestina þeirra. Það sama á við um vinnunna, skólann eða hvað sem er í þínu lífi. Hins vegar, ef reiðin fyllir þig og þú sérð bara svart þá getur þú hvorki losað þig út úr neinu né tekið skynsamlegar ákvarðanir. Þannig að slepptu reiðinni. Það er mjög margt fram undan, svo ekki vera hrædd um að þú klárir ekki allt á hárréttum tíma. Þetta eru sterkustu skilaboðin í þessari spá: flæðið í kringum þig verður til þess að allt mun gerast á hárréttum tíma. Þitt ógnarstóra hjarta getur valdið þér miklum erfiðleikum því þú tekur inn á þig ástandið í heiminum og hvernig öðrum líður. En þú verður að læra að þetta er eitthvað sem þú getur ekki tekið inn í daginn þinn, þú getur alls ekki breytt þessu eða öðrum. Það eina sem þú getur breytt er sjálfri þér. Og mundu, það er alls ekki vandamálið sem drepur þig, heldur tilfinningarnar sem þú finnur fyrir vegna vandamálsins. Þetta verður algjörlega sumarið þitt á meðan þú lætur ekki utanaðkomandi vitleysu bíta þig í hælinn. Hlutirnir eru að gerast með miklum krafti og ef þú lítur í kringum þig er þó nokkuð miklu meiri bjartsýni í þessu sumri heldur en því síðasta. Gefðu þér því tíma til að fagna og eftir því sem þú fagnar meira færðu meiri fegurð inn í lífið. Í útgeislun ertu með svipaðan ljóma og Amor, ástarengillinn sjálfur. Svo þú skalt hugsa um það sem þú vilt og skrifa það svo niður, því þá stimplast óskirnar betur inn í orkuna þína. Og skoðaðu vel það sem þú skrifar niður, því þá skilur þú miklu betur hvað það er sem þú óskar þér.Mottó: Verði þinn vilji ef þú veist svo sannarlega hvað þú vilt.Frægir í Voginni: Kári Árnason landsliðsmaður, Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Lilja Dögg Alfreðsdóttir alþingiskona, Ósk Gunnarsdóttir útvarpskona, María Einarsdóttir ritari stjörnuspánnar, Arnþrúður Karlsdóttir útvarp Saga, Skúli Mogensen, Hulda Hólmkelsdóttir fréttakona, Walter Matthau, Olavia Newton John, Ragga Gísla, Steinn Steinarr, Margret Thatcher, Ragnheiður Elín Árnadóttir, minn meistari.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Mótandi reynsla að upplifa dauðann Lífið Verður aðalnúmer hálfleikssýningar Ofurskálarinnar Lífið Boðaði vinkonurnar í bústað eftir að hafa upplifað Tinder á sterum Lífið Selena Gomez giftist Benny Blanco Lífið Fann ástina loksins þegar hann tók sér marga elskhuga Lífið Ætla að syngja sig hás og dansa við Komdu um jólin Lífið samstarf Seld sú hugmynd að grannur líkami sé það eina sem er aðlaðandi Lífið Krakkatían: Lestrarkeppni, flugumferð og leiksýning Lífið Blondie verður stjarnan á RIFF um helgina Lífið Serumið sem snýr öldrun húðarinnar við Lífið samstarf Fleiri fréttir Verður aðalnúmer hálfleikssýningar Ofurskálarinnar Mótandi reynsla að upplifa dauðann Selena Gomez giftist Benny Blanco Krakkatían: Lestrarkeppni, flugumferð og leiksýning Rapparinn og málverndarsinninn frjáls ferða sinna Boðaði vinkonurnar í bústað eftir að hafa upplifað Tinder á sterum Fréttatía vikunnar: Moulin Rouge, Blóðbankinn og Eurovision „Lætur mér líða eins og tími minn í Hollywood hafi verið ómaksins virði“ Fögnuðu sögulegum 850 þúsund króna hátalara Ella Egils Björgvin Franz brotinn en slær í gegn í Ladda og ræktinni Sonur Fóstbróður slær í gegn: „Ég er fastur þarna núna, orðinn háður“ „Kristrún Frostadóttir frá... Finnlandi?“ Lamaðist og missti sjón en fann styrk í sjálfri sér Víkingur Heiðar hlaut mjög virt verðlaun Fyrstur til að skíða niður Everest án súrefnis „Það sýður miklu frekar upp úr við uppvaskið“ „Mjög fallegt“ hús og „fullfrágengin“ lóð Elli Egils hannaði hátalara fyrir Bang & Olufsen Elli Egils hélt að Elli Egils væri grín Framtíð Ísraela í Eurovision ákveðin í nóvember Fargufan nýjasta æðið á Íslandi Selja íbúð í Vesturbænum: „Við eigum of mörg börn til að búa í henni áfram“ Lýsir raunum einhleypra í Reykjavík: „Tilhugalífið minnir á lélegt bókunarkerfi“ Þetta eru uppáhalds barnabækur ráðherranna Ástfangin á ný Hollywood-stjarna slær sér upp með prins „Er ekki hér til að keppast um fegurð“ Þriðja í heiminn hjá Rihönnu og A$AP Rocky Er ekki eðlilegt að stunda kynlíf á afmælinu? Hefur keypt fasteignir fyrir rúman milljarð íslenskra króna á árinu Sjá meira