Lífið

Blessað barnalánið: Frægir fjölga sér árið 2017

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Til hamingju með lífið!
Til hamingju með lífið! Vísir / Skjáskot af Instagram
Það er ávallt mikið gleðiefni þegar ný manneskja fæðist og hrein unun að fylgjast með henni uppgötva heiminn í fyrsta sinn.

Mikið af okkar skærustu stjörnum hafa verið svo lánsamar að eignast börn á árinu og ákvað Lífið að fara yfir þá sem hafa notið barnaláns árið 2017, þar sem það er farið að styttast í annan endann.

Guðrún Jóna og Rúnar Freyr.Vísir / Vilhelm

Sex börn, takk fyrir

Leikarinn Rúnar Freyr Gíslason eignaðist soninn Breka Frey með konu sinni, Guðrúnu Jónu Stefánsdóttur aðfaranótt 17. nóvember.

Litli snáðinn var þrettán merkur og 49 sentímetrar þegar hann kom í heiminn, töluvert fyrir tímann, en settur dagur var 9. desember.

Þetta er langt frá því að vera fyrsta barn skötuhjúanna. Þegar þau byrjuðu saman átti Rúnar Freyr þrjú börn og Guðrún Jóna eitt. Þau eignuðust síðan dóttur saman árið 2015, þannig að nú telur barnahópurinn sex stykki. Þvílík lukka.

Flýtti sér í heiminn

Hraðfréttapésinn Fannar Sveinsson og hjúkrunarfræðingurinn Valgerður Kristjánsdóttir eignuðust son þann 28. nóvember. 

Líkt og hjá Rúnari Frey og Guðrúnu Jónu, kom sá stuttu einnig fyrir tímann, eða alls tveimur vikum. 

Hér má sjá snáðann litla:


 
A post shared by Fannar Sveinsson (@fannarsveins) on Nov 28, 2017 at 1:31pm PST



Og hér eru þau Fannar og Valgerður:

 
A post shared by Fannar Sveinsson (@fannarsveins) on Sep 1, 2017 at 9:35am PDT

Frumburðurinn fæddur

Tónlistarfólkið Logi Pedro Stefánsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir eignuðust sitt fyrsta barn þann 1. október og hlotnaðist þeim sonur.

Líklegt þykir að drengurinn fái tónlistargen í vöggugjöf þar sem báðir foreldrar hans hafa gert það gott á því sviði, Logi með Retro Stefson og Þórdís með Reykjavíkurdætrum.

Logi og Þórdís eru ekki lengur par en ala soninn upp saman.

 
A post shared by Logi Pedro (@logipedro) on Nov 8, 2017 at 2:13am PST

Elma Stefanía og Mikael.Vísir / Ernir

Barn í stað frumsýningar

Fjölmiðlamaðurinn og skáldið Mikael Torfason eignaðist dóttur þann 20. október með eiginkonu sinni, leikkonunni Elmu Stefaníu Ágústsdóttur.

Dóttirin kom í heiminn sama kvöld og verkið Guð blessi Ísland var frumsýnt í Borgarleikhúsinu, en Mikael er höfundur verksins ásamt Þorleifi Arnarssyni. Hann missti því af frumsýningunni en fékk dóttur í staðinn. Aldeilis dásamleg skipti, eins og Mikael sagði sjálfur frá á Facebook-síðu sinni.

„Þetta er hún Ída. Kom­in í fangið á stóru systkin­um sín­um, þeim Ísold og Jóel. Hún lét bíða eft­ir sér og stal sen­unni á frum­sýn­ing­unni sem ég missti af; með ánægju. Við erum loks­ins kom­in heim í Brekku­selið. Ídu heils­ast vel, sem og móður henn­ar. Þær eru stál­hraust­ar og við gæt­um ekki verið ham­ingju­sam­ari,“ skrifaði hann á sínum tíma.  

Sigga Dögg og Benjamín Leó.Vísir / Anton Brink

Krakkastóð hjá kynfræðingi

Kynfræðingurinn Sigga Dögg eignaðist son í lok janúar 2017 með manni sínum, Hermanni Sigurðssyni. 

Fyrir áttu þau tvö börn, Írisi Lóu og Henry Nóa, en nýjasti snáðinn, sem bráðum verður eins árs, heitir Benjamín Leó.

Tvö börn hjá matgæðingi

Matgæðingurinn Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir eignaðist sitt annað barn með eiginmanni sínum, Haraldi Haraldssyni, föstudagskvöldið 8. september. 

Eva og Haraldur buðu aðra dóttur sína velkomna í heiminn, en fyrir áttu þau dótturina Ingibjörgu Rósu sem fagnaði þriggja ára afmæli sínu í sumar.

Nýjasta viðbótin við fjölskylduna fékk nýverið nafnið Kristín Rannveig.

Á eftir snappi kemur barn

Snapchat-stjarnan Guðrún Veiga Gunnarsdóttir og Guðmundur Þór Valsson, eiginmaður hennar, eignuðust dóttur þann 9. maí.

Guðrún Veiga leyfði aðdáendum sínum á samfélagsmiðlum að fylgjast vel með meðgöngunni og var því mikil gleði meðal fylgjenda hennar þegar hún birti loks mynd af nýfæddu barninu.

Fyrir eiga þau Guðrún Veiga og Guðmundur son.

 
A post shared by Guðrún Veiga (@gveiga85) on Sep 5, 2017 at 10:04am PDT

Skot og mark

Knattspyrnumaðurinn Alfreð Finnbogason og fimleikastjarnan Fríða Rún Einarsdóttir eignuðust sitt fyrsta barn á fyrrihluta þessa árs.

Þegar Alfreð tilkynnti um fæðingu barnsins á Facebook-síðu sinni sagði hann að þau skötuhjúin gætu ekki verið ánægðari með komu stúlkunnar í heiminn og að þau hlakki til að takast á við þennan nýja kafla í lífi þeirra beggja.

Listrænt handboltabarn

Handboltahetjan Aron Pálmarsson og söng- og leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir buðu litla dóttur velkomna í heiminn þann 7. nóvember.

Stúlkan er frumburður Arons en fyrir á Ágústa Eva son úr fyrra sambandi sem kom í heiminn árið 2011.

Hér fyrir neðan má sjá mynd af Aroni og Ágústu sem var tekin rétt áður en hnátan kom í heiminn:


 
A post shared by Agusta Eva Official (@agustaeva) on Oct 27, 2017 at 12:22pm PDT


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×