Kveikir á hamingjuhormóni Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 8. desember 2017 11:00 Thelma Björk Jónsdóttir ætlar að færa kyrrð og vellíðan yfir borgarbúa með hugleiðslu á óvæntum stöðum á aðventunni og langt fram á næsta ár. Í kvöld verður hún með ellefu mínútna hugleiðslu á Yogafood. MYND/ANTON BRINK
Hugarfóstur Thelmu Bjarkar Jónsdóttur, jógakennara, fatahönnuðar og listkennara, næsta árið er Slökun í borg. Thelma Björk verður sýnileg á óvæntum stöðum í borginni á erilsamri aðventunni við að veita borgarbúum almenna slökun. „Hugleiðsla gengur út á það að vingast við sjálfan sig og elska sig eins og maður er nákvæmlega núna, burtséð frá framtíðarplönum eða fortíð. Að þykja jafn vænt um okkur sjálf eins og okkur þykir vænt um mömmur okkar, dætur, systur eða vinkonur, en því miður er það ekki alltaf raunin. Við erum alltaf svo góð við aðra, en líka jafn góð í að dæma okkur hart,“ segir Thelma sem ætlar að mæta brýnni þörf borgarbúa til að gefa sér tíma í slökun og ró í ellefu mínútur á óvæntum stöðum um alla borg. „Á ellefu mínútum náum við að hafa áhrif á innkirtla- og taugakerfi okkar,“ segir Thelma sem vinnur með möntrur úr kundalini-jóga. „Fjölmargar vísindalegar rannsóknir styðja að hugleiðsla og slökun geta auðveldlega dregið úr daglegri streitu, fært okkur innri frið og bætt líkamlega og andlega líðan. Við förum með sömu möntruna aftur og aftur, en með því þjálfum við hugann út úr neikvæðum hugsunum, eins og: „Ég þarf þetta“, „Af hverju er ég ekki svona?“ og „Ég er ömurleg“ yfir í: „Ég er nóg“ og „Ég er fullkomin eins og ég er“, en þó ekki yfir í: „Ég ætla að verða besta útgáfan af sjálfum mér“ eða „Ég ætla að missa fimm kíló fyrir jól“. Við ætlum að njóta þess að vera til hér og nú, nákvæmlega eins og við erum í dag.“ Það þarf ekki að stunda jóga til að geta tekið þátt í hugleiðslu með Thelmu Björk.MYND/ANTON BRINKHamingjan er inni i okkur Hugleiðsluferðalag Thelmu, Slökun í borg, er samstarfsverkefni hennar, Systrasamlagsins og Reykjavíkurborgar. Það stendur yfir í heilt ár en í kvöld verður hún á Yogafood á Grensásvegi. „Það þarf ekki að stunda jóga til að geta tekið þátt í hugleiðslu með mér,“ segir Thelma. „Ég vil taka jóga og hugleiðslu út úr jógasalnum og kynna það fyrir öllum. Allir geta iðkað slökun og hugleiðslu, það er einfalt og ódýrt og krefst í raun engra sérstakra hæfileika,“ segir Thelma og er hæstánægð með samstarf sitt við borgaryfirvöld enda sé það eina sem vanti í borgarsamfélagið að fá leyfi til að slaka á og muna að anda. „Nú er sá árstími genginn í garð þegar allt gengur út á að lifa utan frá og inn, en ég vil reyna að snúa því við og lifa innan frá og út. Við leitum í sífellu að einhverju til að kaupa, borða eða drekka; og að mata okkur á einhverju sem við höldum að sé hamingja. Ég vil sýna fram á að hamingjan sé inni í okkur. Allt sem við þurfum í lífinu er innra með okkur og með því að gefa sér tíma til að hugleiða kviknar á hamingjuhormónum líkamans,“ segir Thelma, og hægt er að hugleiða alls staðar: „Við getum til dæmis hugleitt í umferðinni þegar við erum fimm, tíu mínútur að keyra heim. Það þarf ekki að gerast í hugleiðsluherbergi heima, í réttu fötunum eða við Búddastyttuna. Bara þú með þér er nóg.“Thelma Björk notar heilunar- og friðarmöntru sem gefur frið í hjörtun og frið út í heim.MYND/ANTON BRINKDýrmætt að elska sjálfan sigThelma verður með daglega hugleiðslu og slökun hjá Systrasamlaginu frá 11. til 19. desember. „Hver veit nema ég poppi líka upp í miðri jólaösinni á Laugaveginum til að hugleiða með gestum og gangandi. Ég vann sjálf í verslunum í miðbænum í tíu ár, frá klukkan 10 til 10 öll kvöld í desember og var algjörlega búin á því á lífi og sál þegar jólin loks komu. Ég er líka gömul miðbæjarrotta sem er nýflutt í Kópavoginn. Nú vil ég gefa til baka. Slökun í borg er líka óður til starfsfólks og gesta miðborgarinnar þar sem við stoppum tímann í ellefu mínútur. Síðan heldur hver og einn út í lífið, en sama hvað hann tekur sér fyrir hendur, þá er hann búinn að leggja inn hjá sjálfum sér og hugleiða fyrir daginn.“ Thelma hvetur fólk á öllum aldri, bæði konur, karla og börn, til að koma, hugleiða og eiga fallega stund saman. „Aðeins örfárra mínútna slökun og hugleiðsla á dag getur raðað öllu í réttar hillur, róað og fært innri frið, en það er eitt að segja frá og annað að finna. Við hugleiðsluna nota ég heilunar- og friðarmöntru sem gefur frið í hjörtun og frið út í heim. Það er svo dýrmætt að heila sjálfan sig, þykja vænt um sjálfan sig og hugsa fallega til sjálfs sín því máttur orða og hugsana er sterkari en margir gera sér grein fyrir,“ segir Thelma og hvetur til hugleiðslu á aðventunni þegar áreitið er mikið. „Nú er tíminn til að gefa sjálfum sér hugleiðslu að gjöf, bara fyrir sjálfan sig. Hún er besta gjöfin sem maður getur gefið sjálfum sér; það er tími til að anda að og anda frá.“Thelma Björk segir jóga og hugleiðslu hafa gefið henni traust til lífsins, innri frið, kjark og aukið sjálfstraust.MYND/ANTON BRINKJóga gaf traust til lífsinsThelma er þekktur fatahönnuður, móðir og jógakennari sem varð fyrst hugfangin af jóga og hugleiðslu á meðgöngu. Þaðan lá leiðin í kennaranám í kundalini-jóga hjá Auði Bjarnadóttur í Jógasetrinu. „Jóga og hugleiðsla breyttu lífi mínu í alla staði. Það gaf mér innri frið, sjálfstraust, kjark og úthald til að stíga inn í drauma mína og trúa á sjálfa mig. Ég hef náð að næra allt það bjarta og góða í sjálfri mér, og sjá það í öðrum, auk þess sem ég upplifi aukinn kjark og úthald til að takast á við áskoranir sem ég mæti í lífinu,“ segir Thelma sem umfram allt hefur öðlast traust til lífsins í gegnum jógaiðkun sína. „Ég treysti því að lífið færi mér allt sem ég þarf og allt sem ég vil.“ Thelma kennir eldri borgunum jóga og hugleiðslu í Jógasetrinu og kundalini-jóga í Hlíðasmára 14. Hún hefur einnig unnið með Systrasamlaginu og leitt jóga og hugleiðslu fyrir hið fræga sveitasamflot samlagsins. Nýverið lauk hún meistaranámi við Listaháskóla Íslands í listkennslufræðum þar sem hún vann og vinnur með tengsl á milli handverks og hugleiðslu. „Ég vann lengi að því að hanna hatta og spangir undir merki mínu Thelma Design, en fann að mig langaði að miðla því sem ég hafði lært og fundið í gegnum jóga. Í jógakennaranáminu fann ég kunnuglega vellíðunartilfinningu sem ég í fyrstu kom ekki auga á hvaðan var sprottin. Í meistaranáminu raðaðist púslið loks saman og ég uppgötvaði hvaðan þessi vellíðan og hugarró var komin; það var þegar ég var að hekla og prjóna með ömmu,“ segir Thelma sem nú miðlar reynslu sinni í gegnum námskeið sín „Slaka&Skapa“ þar sem hún blandar saman hugleiðslu við skapandi ferli hvers nemanda. „Um leið og maður nær í þetta vellíðunarflæði, hvort sem það er í handavinnu, garðvinnu eða við eldamennsku, tapar maður tímanum og fer í hugleiðsluástand. Ég fann loks að þetta tengdist allt. Ég hafði hugleitt frá því ég var barn en í gegnum annan miðil; handverkið. Það þarf ekki meira en nál og tvinna til, og að anda og leyfa sér að vera.“ Hægt er að fylgjast með hugleiðsluferðalagi Thelmu í viðburðum á Facebook undir Slökun í borg, fyrir alla, á heimasíðu hennar, andadu.com, og á systrasamlagid.is. Hugleiðslan á Yogafood, Grensásvegi 10, hefst klukkan 18.30 í kvöld. Aðgangur er ókeypis.
Mest lesið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Lífið Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Tónlist Bieber gefur út óvænta plötu Lífið Upprunalega Birkin taskan seld á rúman milljarð Tíska og hönnun Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Lífið Borgin býður í tívolíveislu Tónlist Ragga Holm og Elma trúlofaðar Lífið Pfúff: Fjölskyldufrí og systkinin endalaust að rífast Áskorun Fleiri fréttir Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Sjá meira