Forsætisráðherra í krumlum Sádi-Araba Jóhann Óli Eiðsson skrifar 13. nóvember 2017 06:00 Mynd frá fundi Saads Hariri og Salmans bin Abdulaziz Al Saud, konungs Sáda, sem fram fór fyrir viku. Ýmsir telja að Hariri sé nær því að vera fangi Al Saud heldur en gestur hans. vísir/epa
Grunur leikur á að stjórnvöld Sádi-Arabíu haldi Saad Hariri, forsætisráðherra Líbanons, í landi þeirra gegn vilja hans. Tíu dagar eru liðnir frá því að Hariri fór til Sádi-Arabíu en hann hefur ekki komið þaðan aftur. Fyrir rúmri viku lagði Hariri af stað til Sádi-Arabíu. Daginn eftir að hann lenti þar flutti hann ávarp frá landinu þar sem hann sagði af sér sem forsætisráðherra Líbanons. Ástæðan var sú að hann óttaðist að verða ráðinn af dögum. Forseti Líbanons, Michel Aoun, hefur hins vegar neitað að fallast á afsögn hans nema hann komi heim til Líbanons. Nánir samstarfsmenn Hariri segja við katarska miðilinn Al-Jazeera að um leið og hann hafi lent í Riyadh, höfuðborg Sádi-Arabíu, hafi hann áttað sig á því að eitthvað var rangt. Engin móttökunefnd hafi beðið hans líkt og venjan er. Sími hans hafi verið gerður upptækur og hann þvingaður til að flytja ávarpið. Sömu heimildarmenn herma einnig að Sádar hafi lengi lagt á ráðin um að eldri bróði Saads, Bahaa, taki við af bróður sínum. Rætt hafi verið við fjölskyldumeðlimi um að þeir heimsæki Sádi-Arabíu í þeim tilgangi að sverja þeim eldri, Bahaa, hollustu en ekki hefur verið fallist á það. Hariri mætti í sjónvarpsviðtal í gærkvöld og tilkynnti að hann hygðist snúa heim aftur í vikunni. Hann væri ekki fangi í Sádi-Arabíu. Talið er að ástæðan fyrir nýliðnum atburðum sé sú að Sádar telji Hariri sýna of mikla linkind gagnvart Hezbollah. Samtökin aðhyllast sjía arm íslam og njóta stuðnings Írana. Sádar eru aftur á móti súnní múslimar og meðal helstu andstæðinga Írana. Hafa þeir lengi reynt allt það sem þeir geta til að veikja samtökin en þau eru í senn stjórnmála- og skæruliðasamtök. Sem stendur eiga þau sæti í ríkisstjórn Saads Hariri. Aðgerðin hefur ýtt Líbanon aftur í fremstu röð í átökum Írana og Sáda sem nú standa yfir. Hingað til hafa Írak, Sýrland og Jemen verið í brennidepli en í öllum þeim löndum hafa staðið yfir átök þar sem Íranar og Sádar hafa stutt dyggilega við bakið á skoðanabræðrum sínum.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Macron óvænt mættur til Sádi-Arabíu Frakklandsforseti segist ætla að ítreka við yfirvöld þar í landi hversu mikilvægt það er að í Líbanon ríki stöðugleiki og ró. 10. nóvember 2017 08:09 Hitnar í köldu stríði Írana og Sádi-Araba Sádi-Arabar segja Íransstjórn nánast lýsa yfir stríði með stuðningi sínum við uppreisnarmenn í Jemen og Líbanon. Afsögn forsætisráðherra Líbanons talin afleiðing þrýstings frá Sádi-Aröbum. Atburðir síðustu daga þykja líklegir 8. nóvember 2017 11:00 Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Innlent Fleiri fréttir Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Sjá meira
Macron óvænt mættur til Sádi-Arabíu Frakklandsforseti segist ætla að ítreka við yfirvöld þar í landi hversu mikilvægt það er að í Líbanon ríki stöðugleiki og ró. 10. nóvember 2017 08:09
Hitnar í köldu stríði Írana og Sádi-Araba Sádi-Arabar segja Íransstjórn nánast lýsa yfir stríði með stuðningi sínum við uppreisnarmenn í Jemen og Líbanon. Afsögn forsætisráðherra Líbanons talin afleiðing þrýstings frá Sádi-Aröbum. Atburðir síðustu daga þykja líklegir 8. nóvember 2017 11:00