Nora Mörk kærir fimmtán menn fyrir að dreifa myndunum af sér Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. nóvember 2017 16:05 Nora Mörk Vísir/AFP
Norska handboltakonan Nora Mörk ætlar ekki gefa neitt eftir í baráttunni við þá óprúttnu aðila sem brutust inn í símann hennar í haust og komust yfir viðkvæmar myndir af henni. Nora Mörk steig fram á mánudaginn og fór í sjónvarpsviðtal á norsku sjónvarpsstöðinni TV2 þar sem hún sagði öllum frá raunum sínum en hún upplifði mjög erfiða tíma eftir að menn fóru að dreifa viðkvæmum myndum af henni á netinu. Í stað þess að lifa með þetta í felum þá ákvað hún að gera málið opinbert og hefur í framhaldinu fengið mikinn stuðning allstaðar að. Málið hefur vakið mikla athygli á nettröllum og glæpum sem þessum á netinu. Um leið og Nora Mörk sagði frá þessu á mánudaginn þá talaði hún einnig um að það að hún ætlaði að kæra alla þá sem hafa dreift þessum viðkvæmu myndum af henni. Við þau orð stóð hún því í dag kærði tvíburasystir hennar, Thea Mörk, fimmtán menn til lögreglunnar, í Larvik í Noregi, fyrir að dreifa myndum af systur sinni. TV2 segir frá. „Okkur var full alvara þegar við sögðumst ætla að kæra alla þá sem deila þessum myndum. Við erum þakklátar þeim sem hafa sent okkur skjáskot með upplýsingum um þá aðila sem hafa dreift þessum myndum,“ sagði Thea Mörk í viðtali við TV 2. Nora Mörk er á leiðinni á heimsmeistaramótið í Þýskalandi með norska landsliðinu í næsta mánuði en í kvöld spilar hún með ungverska liðinu Györ. Mörk er ein besta handboltakona í heimi og lykilmaður í norska landsliðinu sem hefur unnið gull á HM og EM á síðustu tveimur árum.
Handbolti Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Fleiri fréttir Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Sjá meira