Lífið

Er stolt, hrærð og ánægð

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Eva Björk lítur björtum augum til framtíðarstarfsins í Dómkirkjunni.
Eva Björk lítur björtum augum til framtíðarstarfsins í Dómkirkjunni. Vísir/Ernir
Þetta eru vissulega tímamót. Ég er stolt, hrærð og ánægð,“ segir séra Eva Björk Valdimarsdóttir sem nýlega var ráðin til prestþjónustu í Dómkirkjunni. Hún kveðst spennt fyrir að vinna fyrir söfnuðinn þar við hlið sóknarprestsins, séra Sveins Valgeirssonar, og annars starfsfólks.

Eva Björk er ekki alveg blaut bak við eyrun.

„Síðustu tvö ár hef ég verið prestur í Keflavíkurkirkju, vígðist þangað árið 2015 en var áður framkvæmdastjóri Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar í tvö ár. Byrjaði í því starfi þegar ég útskrifaðist úr guðfræðideild Háskólans árið 2013.

Áður tók ég BA í sálfræði og vann ýmis störf tengd sálfræðinni því ég var á leið í framhaldsnám í réttarsálfræði þegar ég venti mínu kvæði í kross og ákvað að fara í guðfræðideildina. Hafði hugsað æ meira um trúmál og trúarbrögð eins og margir aðrir, tel að atburðirnir 11. september 2001 hafi haft þar áhrif og að eftir þá hafi mörgum fundist trú hættuleg. En ég álít að við þurfum frekar að læra meira bæði um okkar kristnu trú og önnur trúarbrögð.“

Það erfiðasta sem Eva Björk hefur tekist á við í prestsstarfinu er að jarðsyngja ungt fólk. „Dauðinn snertir mann alltaf djúpt, einkum þegar hann er ótímabær. Þá þarf maður styrk til að þjóna syrgjendum en það er líka gefandi.“

Hún kveðst ekki hafa áhyggjur af að íslenska þjóðin sé að ganga af trúnni. „Ég held að fólk sé miklu trúaðra almennt en umræðan í þjóðfélaginu gefur til kynna. Það kom til dæmis í ljós í þjóðar­atkvæðagreiðslunni um tillögur stjórnlagaráðs 2012, þá var umræðan um íslensku þjóðkirkjuna búin að vera neikvæð, samt kaus fólk með henni.“

Eva Björk er fædd og uppalin á Akureyri en flutti til Reykjavíkur 1998 þegar hún fór í sálfræðina í HÍ. Trúarlegt uppeldi? „Já, að einhverju leyti. Ég fór í sunnudagaskóla í Glerárkirkju og kristilegar sumarbúðir á Vestmannsvatni. Bara svipað og gerist og gengur,“ segir hún látlaus og veit ekki enn hvenær hún stígur fyrst í stólinn í höfuðkirkju Íslands.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×