Tíu bandarískra sjóliða saknað Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. ágúst 2017 07:02 Tundurspillirinn John S McCain er nefndur eftir föður og afa þingmannsins John McCain. Vísir/afp
Tíu bandarískra sjóliða er saknað og fimm eru særðir eftir að tundurspillir Bandaríkjahers lenti í árekstri við líberískt olíuskip úti fyrir ströndum Singapúr, að því er fram kemur í tilkynningu frá bandaríska sjóhernum. BBC greinir frá. Tundurspillirinn, John S McCain, var á siglingu austan við Singapúr og stefndi að höfn þegar áreksturinn varð. Viðamiklar leitar- og björgunaraðgerðir fara nú fram á svæðinu en þyrlur Bandaríkjahers, auk björgunarmanna frá landhelgisgæslum Malasíu og Singapúr, eru þar að störfum. Tilkynnt var um samstuðið klukkan 05:24 að staðartíma í morgun, mánudag, eða 21:24 að íslenskum tíma í gærkvöldi. Skipið John S McCain, sem nefnt er eftir föður og afa þingmanns Repúblikana, John McCain, varð fyrir skemmdum á vinstri hlið. Tankur á olíuskipinu, Alnic MC, skemmdist við áreksturinn en engan úr áhöfn þess sakaði. Þá fór engin olía út í sjó en skipið er nokkuð stærra en tundurspillirinn. John McCain og Donald Trump Bandaríkjaforseti hafa báðir sagst biðja fyrir sjóliðunum.Cindy & I are keeping America's sailors aboard the USS John S McCain in our prayers tonight - appreciate the work of search & rescue crews https://t.co/jzk9giXbfg— John McCain (@SenJohnMcCain) August 21, 2017 Thoughts & prayers are w/ our @USNavy sailors aboard the #USSJohnSMcCain where search & rescue efforts are underway. https://t.co/DQU0zTRXNU— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) August 21, 2017 Fjórir hinna slösuðu eru ekki lífshættulega særðir en farið hefur verið með þá á sjúkrahús í Singapúr. Sá fimmti þurfti ekki á frekar læknisaðstoð að halda. Bæði skipin eru nú á leið í land. Þetta er annar árekstur bandarísks herskips á síðustu mánuðum en sjö bandarískir sjóliðar létust í árekstri herskipsins Fitzgerald við vöruflutningaskip úti fyrir ströndum Japans í júní.
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira