Lífið

Segir að „gamla Taylor Swift“ sé dáin

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Margir aðdáendur Taylor Swift hafa beðið spenntir eftir nýrri plötu frá söngkonunni.
Margir aðdáendur Taylor Swift hafa beðið spenntir eftir nýrri plötu frá söngkonunni. Skjáskot
Taylor Swift gaf út nýtt lag í gær en þetta er það fyrsta sem heyrist af væntanlegri plötu hennar, Reputation. Söngkonan gaf síðast út plötuna 1989 og eru liðin þrjú ár síðan. Stíll Swift er þónokkuð breyttur og í laginu sem ber nafnið Look What You Made Me Do

„Því miður kemst gamla Taylor ekki í símann núna. Af hverju? Oh, því hún er dáin.“

Platan Reputation kemur út þann 10.nóvember næstkomandi. Áður en Swift tilkynnti það henti hún öllu út af sínum samfélagsmiðlum. Á Instagram er hún með meira en 100 milljón fylgjendur en allar eldri myndir af henni með vinum, fjölskyldu og fyrrum kærustum eru horfnar. Þar má bara sjá níu myndir tengdar nýju plötunni.

Swift lét textamyndband fylgja laginu í gær en annað myndband við lagið er væntanlegt frá henni seinna í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×