Þingmenn Ástrala mega ekki hafa tvöfalt ríkisfang Jóhann Óli Eiðsson skrifar 15. ágúst 2017 06:00 Barnaby Joyce sést fyrir miðri mynd. Hann situr í hópi fleiri ráðherra og bíður eftir óundirbúnum fyrirspurnum frá stjórnarandstöðunni. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA vísir/epa
Pólitískur frami aðstoðarforsætisráðherra Ástralíu gæti verið í hættu eftir að upp komst að hann er með tvöfalt ríkisfang. Hann og fleiri þingmenn íhuga að fara með málið fyrir dómstóla. Í Ástralíu er í lögum að óheimilt sé að sitja á þingi sé maður með tvöfalt ríkisfang. Löggjöfin var nokkuð óþekkt þar til hún var dregin fram í dagsljósið í síðasta mánuði. Afleiðingin er sú að stjórnmálamenn hafa þurft að róta í ættarskrám til að sýna fram á þjóðerni sitt. Málið er sérstaklega athyglisvert í ljósi þess að um helmingur þeirra 24 milljóna sem búa í Ástralíu fæddust í öðru landi eða eiga foreldri sem fæddist í öðru landi. „Það kom mér mjög á óvart að komast að þessu,“ segir aðstoðarforsætisráðherrann Barnaby Joyce. „Ég er fæddur í Tamworth í Nýja Suður-Wales. Hvorki ég né foreldrar mínir höfðum nokkra ástæðu til að ætla að ég væri ríkisborgari í öðru landi.“ Þessi mál hafa verið í umræðunni síðan í síðasta mánuði eftir að Scott Ludlam, leiðtogi Græningja, sagði af sér eftir að hann uppgötvaði að hann var einnig Nýsjálendingur. Þingmaður og ráðherra, annar fæddur í Kanada og hinn af ítölskum ættum, hafa þurft að fara sömu leið. Nú er staða Joyce í hættu eftir að í ljós kom að faðir hans fæddist á Nýja-Sjálandi. Sem sonur hans er hann sjálfkrafa með nýsjálenskt vegabréf. Talið er að þingmennirnir ætli að sameina mál sín og reka þau fyrir dómstólum landsins til að fá á hreint hvort lögin samræmist stjórnskipan landsins. Framtíð Joyce gæti haft áhrif á líftíma ríkisstjórnarinnar en hún hefur aðeins eins manns meirihluta á þingi landsins.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sjá meira