Erlent

Repúblikanar andæfa fordómum og Trump forseta

Kjartan Kjartansson skrifar
Ummæli Trump um óeirðirnar í Charlottesville eru sögð hafa verið óundirbúin og komið aðstoðarmönnum hans á óvart.
Ummæli Trump um óeirðirnar í Charlottesville eru sögð hafa verið óundirbúin og komið aðstoðarmönnum hans á óvart. Vísir/AFP
Háttsettir fulltrúar Repúblikanaflokksins hafa hafnað fordómum og hatri eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði mótmælendur kynþáttahaturs að jöfnu við nýnasista og aðra hvíta þjóðernissinna í gær. Ekki voru hins vegar allir tilbúnir að gagnrýna forsetann beint.

Á furðulegum blaðamannafundi í New York í gær fór Trump mikinn um hvernig ofbeldið sem blossaði upp í Charlottesville um helgina í tengslum við samkomu hvítra þjóðernissinna væri jafnt öfgamönnunum og mótmælendum þeirra að kenna. Trump sagði jafnframt að margt gott fólk væri í „báðum fylkingum“ en í þeim leyndust einnig svartir sauðir.

Kona á fertugsaldri lést þegar tvítugur maður sem hefur verið lýst sem stuðningsmanni nasista ók bíl sínum inn í hóp mótmælenda á laugardag.

Forsetinn hafði áður sætt mikilli gagnrýni fyrir að hafa ekki fordæmt hvíta þjóðernisöfgamenn strax um helgina. Það var ekki fyrr en á mánudag sem hann nefndi fyrst nýnasista og hvíta þjóðernissinna á nafn og fordæmdi þá en á blaðamannafundinum í gær vatt hann ofan af þeirri yfirlýsingu og bætti í fyrri ummæli sín um að átökin hafi verið báðum fylkingum að kenna.

Hafna sekt beggja fylkinga

Ummæli forsetans hafa mikið mikla furðu vestanhafs og um allan heim. Hefur Trump verið sakaður um að taka upp málstað hvítra þjóðernissinna.

John McCain, ein áhrifamesti öldungadeildarþingmaður repúblikana sem hefur gjarnan verið einn mest áberandi gagnrýnandi Trump úr þeim ranni, mótmælti Trump beint á Twitter í gær.

„Rasistar og Bandaríkjamenn sem standa gegn hatri og fordómum eru ekki siðferðislega jafnir. Forseti Bandaríkjanna ætti að segja það,“ tísti McCain.

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi flokksins árið 2012, sagði Trump einnig hafa gert rangt með því að kenna báðum fylkingum um hvernig fór í Charlottesville.

„Nei, ekki það sama. Önnur fylkingin er rasískir, fordómafullir nasistar. Hin fylkingin er andsnúin rasisma og fordómum. Siðferðislega ólíkir heimar,“ tísti Romney.

Formenn þingnefnda Repúblikanaflokksins í báðum deildum Bandaríkjaþings gagnrýndu forsetann einnig.

„Ég skil ekki hvað er svona erfitt við þetta. Hvítir þjóðernissinnar og nýnasistar eru illir og það ætti ekki að verja þá,“ sagði Steve Stivers, formaður þingnefndar flokksins í fulltrúadeildinni.

Tveir helstu leiðtogar flokksins í fulltrúadeildinni virtust aftur á móti ekki treysta sér til þess að beina gagnrýni sinni beint að Trump forseta.

Þannig gaf Paul Ryan, forseti fulltrúadeildarinnar, út almenna yfirlýsingu á Twitter þar sem hann fordæmdi hvíta þjóðernishyggju og fordóma án þess að nefna forsetann sérstaklega, að því er kemur fram í frétt The Guardian.

Það sama gerði Kevin McCarthy. formaður þingflokks repúblikana í fulltrúadeildinni. Hann sagði ofbeldið og dauða konunnar á laugardag hafa verið beina afleiðingu hatursfullrar orðræðu og gjörða í mótmælum hvítra þjóðernissina.

Morðið var hryðjuverk

Terry McAuliffe, ríkisstjóri Virginíu, tók af allan vafa um báðar fylkingar hafi borið jafna ábyrgð á ofbeldinu í Charlottesville. Nýnasistar, Ku Klux Klan-liðar og hvítir þjóðernissinnar hafi mætt vopnaðir, spúandi hatri og í leit að áflogum. Einn þeirra hafi myrt unga konu í hryðjuverki.

„Ríkið okkar og þjóðin er enn að ná sér eftir mestu úthellingar haturs og ofbeldis sem við höfum upplifað í samtímasögunni. Við þurfum raunverulega forystu, það byrjar hjá forsetanum,“ sagði McAuliffe í yfirlýsingu.

Yfirlýsing Terry McAuliffe, ríkisstjóra Virginíu, eftir blaðamannafund Donalds Trump í gær.
António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, var einn margra leiðtoga alþjóðasamfélagsins sem fordæmdi ofbeldisverkin í Virginíu.

„Rasismi, útlendingahatur, gyðingahatur og íslamófóbía eru að eitra þjóðfélög okkar. Við verðum að standa gegn þeim. Alltaf. Alls staðar,“ tísti Guterres í gærkvöldi.

Talsmaður Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, sagði myndirnar frá Charlottesville viðbjóðslegar þar sem augljós rasismi, gyðingahatur og hatur hafi verið borið á borð. Sagði hann Merkel styðja þá sem mótmæltu öfgahægriskoðunum af því tagi á friðsamlegan hátt, að því er segir í frétt The Independent.


Tengdar fréttir

Myndasyrpa frá átökunum í Charlottesville

Þegar hópar þjóðernissinna sem komu saman í Charlottesville í Bandaríkjunum mættu gagnmótmælendum um helgina kom fljótt til átaka þeirra á milli.

Gagnrýna forsetann harðlega

Stjórnendur spjallþátta Bandaríkjanna virðast vera sammála um að Donald Trump, forseti, hafi haldið hræðilega á spöðunum varðandi samkomu nýnasista og þjóðernissinna í Charlottesville um helgina.

Fyrr­ver­and­i kenn­ar­i ök­u­manns­ins seg­ir hann dá Hitl­er

James Alex Fields hefur verið ákærður, meðal annars fyrir morð, fyrir að aka bíl sínum inn í hóp fólks sem var að mótmæla samkomu þjóðernissinna vegna fyrirhugaðs niðurrifs styttu af Robert E. Lee, hershöfðinga Suðurríkjanna í þrælastríði Bandaríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×