Hrafnhildur heyrði sendiferðabílinn aka á fólkið Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 17. ágúst 2017 19:30 Hrafnhildur faldi sig í lítilli fatabúð ásamt sex öðrum. Vísir/samsett mynd/afp
Hrafnhildur Jóna Hjartardóttir og vinkona hennar voru á leið á markaðinn La Boqueria og voru rétt við Römbluna þegar þær heyra skyndilega mikil læti. Hrafnhildur er tuttugu og tveggja ára og er í starfsnámi í Barselóna. Hún hefur dvalið í borginni í rúma viku þegar þessir skelfilegu atburðir eiga sér stað. Hún segist hafa heyrt fólk reka upp öskur og þá hafi hún, full örvæntingar, tekið á rás. „Ég hélt að ég væri að fara að deyja,“ segir Hrafnhildur sem vissi ekki frá hverju hljóðið barst en vissi að það væri eitthvað slæmt og jafnframt að það væri nálægt sér. Hún týndi veskinu sínu í öllum hamaganginum. Í öllum látunum varð Hrafnhildur viðskila við vinkonu sína og leitaði hún skjóls í lítilli fatabúð þar sem hún faldi sig ásamt sex öðrum. Eigandi búðarinnar lét öryggishliðið síga niður til að verja fólkið. Hrafnhildur beið í um tíu mínútur í versluninni, eða þar til hún taldi öruggt að halda aftur út. Vegfarandi lét þau vita hvað hefði gerst og hraðaði hún sér því aftur á hostelið sem hún dvelur á um þessar mundir. „Ég náði engu sambandi við vinkonu mína sem ég var með. Ég hélt hún væri kannski dáin en hún hafði síðan samband tíu mínútum seinna,“ segir Hrafnhildur sem tekur fram að vinkona hennar hafi leitað skjóls að heimili Spánverja. Hrafnhildur segir að mælst sé til þess að fólk haldi sig innandyra að svo stöddu og ætla vinkonurnar að vera áfram inni á hostelinu. Hún segir það hafa hjálpað sér svakalega að heyra í fjölskyldu og vinum.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Fleiri fréttir Trump boðar gjaldtöku á Hormuz-sundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Sjá meira