Sannfærður um að Akranes sigli til Eyja Benedikt Bóas skrifar 2. ágúst 2017 06:00 Akranes á siglingu milli Akraness og Reykjavíkur. Niðurstöðu er að vænta í dag um hvort báturinn geti létt undir með Eyjamönnum. Bæjarstjórinn og þingmaður úr Eyjum eru ósáttir við Samgöngustofu. vísir/anton brink „
Þetta hefur eitthvað verið að þvælast fyrir þeim,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, en samgönguráðuneytið mun í dag ljúka ferjumálinu svokallaða. Fundað var í allan gærdag og byrjaði fundurinn um klukkan níu. Ekki tókst að ljúka fundinum með ákvörðun og verður hún tekin í dag. Samgöngustofa hafnaði beiðni Eimskips um að sigla ferjunni Akranesi til Vestmannaeyja um verslunarmannahelgina. Ferjan hefur verið í tilraunasiglingum milli Akraness og Reykjavíkur, en sótt var um tímabundið leyfi fyrir breytingu á siglingum. Eftir að beiðninni var hafnað sendi Elliði stjórnsýslukæru vegna málsins til samgönguráðherra. Niðurstaða ráðuneytisins vegna hennar komi fyrr en í fyrsta lagi í dag.Elliði Vignisson, bæjarstjóri.vísir/stefán„Ég er sannfærður um að þetta mál getur bara endað á einn veg,“ segir Elliði og bætir við að hann lesi lítið í langan fundartíma. „Við hljótum að gera þær kröfur til stjórnvalda, ekki bara til þessara eftirlitsstofnunar, heldur til allra stofnana að ákvarðanir séu teknar á málefnalegan máta og fólk hafi á tilfinningunni að réttsýni blasi við en ekki að geðþóttarök séu notuð eins og meint ástand á farþegum. Það hleypti verulega illu blóði í okkur að forstjóri Samgöngustofu (Þórólfur Árnason) skyldi leyfa sér það að segja svo. Við sem höfum sótt Þjóðhátíð í hartnær hálfa öld, eins og ég hef gert, vitum að Þjóðhátíð hefur breyst og ungt fólk í dag er langtum meira og betur til fyrirmyndar en kynslóð Þórólfs var og mín reyndar líka.“ Eins og sjá má í svari Páls Magnússonar þingmanns finnst honum rökstuðningur Samgöngustofu vera fullur af innbyrðis mótsögnum og óskiljanlegur í samhengi hlutanna. Elliði tekur undir þessi orð. „Mér finnst þessi eftirlitsstofnun í þessu máli hafa farið algjörlega framúr sér. Það er hreint óþægilegt fyrir okkur sem eigum svona mikið undir í samgöngum að geta ekki gengið að þessu kerfi sem sanngjarnara og vandaðra.“ Eimskip sótti um leyfið fyrir um mánuði og Vestmannaeyjabær kom inn í ferlið á síðari stigum. „Þetta er svo mikilvægt fyrir okkur að við verðum að verja hagsmuni okkar og munum gera það eins lengi og þurfa þykir,“ segir Elliði. Aðspurður hvað gerist ef ákvörðun ráðuneytisins verður neikvæð segir hann að það séu fleiri fyrirtæki í útsýnissiglingum á Íslandi. „Við munum klárlega hvetja alla til að leita fyrir sér með flutninga í farþega- og útsýnissiglingu í kringum Vestmannaeyjar.“ Hann segir að þetta snúist ekki aðeins um að gera Þjóðhátíð sem stærsta og mesta. Hún verði alltaf glæsileg og verði eftir í minningum fólks ár eftir ár. „Þetta snýst um að auka þjónustu fyrir gesti okkar og líka að við sem eyjasamfélag, sem á allt undir í samgöngum, sitjum ekki undir svona óvönduðum og geðþóttafullum ákvörðunum.“
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Niðurstaða Samgöngustofu óboðleg „Mér finnst niðurstaða Samgöngustofu í þessu máli og rökstuðningurinn með henni vera full af innbyrðis mótsögnum, vera ómálefnaleg og óskiljanleg í samhengi hlutanna,“ segir Páll Magnússon. 2. ágúst 2017 06:00 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira
Niðurstaða Samgöngustofu óboðleg „Mér finnst niðurstaða Samgöngustofu í þessu máli og rökstuðningurinn með henni vera full af innbyrðis mótsögnum, vera ómálefnaleg og óskiljanleg í samhengi hlutanna,“ segir Páll Magnússon. 2. ágúst 2017 06:00