Í skýjunum með fimmtán mínútna túrinn milli lands og Eyja Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. ágúst 2017 12:43 Akranes á siglingu milli Akraness og Reykjavíkur. Niðurstöðu er að vænta í dag um hvort báturinn geti létt undir með Eyjamönnum. Bæjarstjórinn og þingmaður úr Eyjum eru ósáttir við Samgöngustofu. vísir/anton brink
Fólksflutningar með ferjunni Akraness til og frá Vestmannaeyjum um liðna verslunarmannahelgi tókust alveg stórkostlega. Þetta segir Gunnlaugur Grettisson, framkvæmdastjóri Sæferða sem rekur ferjuna. Leyfi til að sigla til Eyja á föstudegi og frá Eyjum á mánudegi fékkst á miðvikudag í síðustu viku eftir að Vestmannaeyjabær kærði úrskurð Samgöngustofu sem hafnað hafði beiðni um leyfi til siglinga. Gunnlaugur sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun að hann hefði vonast til þess að fyrst leyfi fékkst fyrir siglingar á föstudegi og mánudegi að talið yrði í lagi að sigla líka laugardag og sunnudag. Góð nýting var á ferðunum sex til Eyja á föstudag og fullt í allar ellefu ferðirnar í Landeyjahöfn í gær, mánudag. Hann segir frábæra stemningu hafa verið um borð en Akranes er fimmtán mínútur á milli lands og Heimaeyjar. Herjólfur er 35 mínútur sömu leið. Hann segir mikil tækifæri í Akranesinu.Gunnlaugur Grettisson segir niðurstöðu Samgöngustofu um að synja um leyfi líklega klaufaskap og vill ekki dvelja við málið.vísir/óskar p. friðrikssonEkki til íslenskt regluverk „Þetta skip sem við fórum og völdum í Noregi, sigldum því yfir hafið frá Stavangri með viðkomu í Vestmannaeyjum, er alveg frábært,“ segir Gunnlaugur. Samgöngustofa synjaði upphaflega beiðni Sæferða um leyfi til siglinga í tengslum við Þjóðhátíð. Athygli vakti að Samgöngustofu hafði ekki íslenskar reglur til að miða við þar sem regluverk er ekki til fyrir jafnhraðskreiðar ferjur og Akranesið. Samgöngustofa byggði því ákvörðun sína á evrópskum reglum. „Það var veitt heimild fyrir skipið Akranes til að sigla í tilraunaskyni á afmarkaðri siglingaleið milli Reykjavíkur og Akraness í takmarkaðan tíma. Þar þurfti ákveðinn rökstuðning til vegna þess að skipið uppfyllir ekki Evrópureglur sem hafa verið innleiddar í gegnum EES-samninginn,“ sagði Þórhildur Elín Einarsdóttir, upplýsingafulltrúi Samgöngustofu, við Vísi í síðustu viku. „Engu að síður taldi Samgöngustofa, með þessum ákveðnu forsendum, réttlætanlegt að veita þessa tilteknu heimild. Þar með er skipið ekki orðið hæft til að sigla hvar sem er, þó að það hafi verið talið hæft til að sigla þessa tilteknu siglingaleið. Þannig var það til dæmis ekki metið hæft til að sigla milli lands og Eyja,“ sagði Þórhildur. Samgönguráðuneytið felldi ákvörðun Samgöngustofu úr gildi á miðvikudaginn en meðal annars var bent á að hafsvæðið milli Reykjavíkur og Akraness væri skilgreint á sama hátt og svæðið milli lands og Eyja.Þeir voru kampakátir úti í Eyjum á föstudaginn félagarnir Jón ráðherra og Ásmundur Friðiksson þingmaður. Milli þeirra er Halla Ragnarsdóttir, eiginkona Jóns.visir/óskar péturSjá mikil tækifæri Gunnlaugur segir að Jón Gunnarsson samgönguráðherra, sem skellti sér til Eyja með einni af ferðum Akraness á föstudaginn, hafi tjáð sér að regluverk fyrir ferjur eins og Akranesið væri í smíðum. „Við sjáum gríðarleg tækifæri í þessu,“ segir Gunnlaugur. Sæferðir, dótturfélag Eimskipa, gera út ferjur á Breiðafirði, Akranesi auk Herjólfs sem siglir til Eyja. „Það þarf að vera hægt að gera þetta víðar,“ segir Gunnlaugur og segir Norðmenn góða fyrirmynd í þeim efnum. Menn hafi sofið á verðinum á Íslandi gagnvart þessari tegund fólksflutninga. Ölduhæð og sandsöfnun hafa valdið töluverðu raski á siglingum í og úr Landeyjahöfn undanfarna vetur.Nýja Vestmannaeyjaferjan sem stefnt er á að afhenda næsta sumar.VegagerðinNý ferja mun breyta miklu „Við höfum upplifað það í gegnum veturna að stundum eru aðstæður rosalega flottar í janúar og febrúar en þá er dýpið of lítið fyrir Herjólf,“ segir Gunnlaugur. Ný Vestmannaeyjaferja, sem til stendur að afhenda næsta sumar, á að hjálpa mikið til. Herjólfur ristir 4,3 metra og siglingarnar miðast við 2,5 metra ölduhæð að hámarki. Nýja ferjan ristir hins vegar aðeins 1,5 metra og getur athafnað sig á 3,5 metrum. „Nýja ferjan mun ekki sigla 365 daga á ári en hún mun gera miklu betur en Herjólfur,“ segir Gunnlaugur.Viðtalið í heild má heyra hér að neðan en þar kemur meðal annars fram að áttatíu þúsund manns fari á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja.
Tengdar fréttir Niðurstaða Samgöngustofu óboðleg „Mér finnst niðurstaða Samgöngustofu í þessu máli og rökstuðningurinn með henni vera full af innbyrðis mótsögnum, vera ómálefnaleg og óskiljanleg í samhengi hlutanna,“ segir Páll Magnússon. 2. ágúst 2017 06:00 Jón Gunnarsson sigldi með Akranesi á Þjóðhátíð í morgun Afpantaði flug til því hann vildi prófa að sigla til Vestmannaeyja. 4. ágúst 2017 13:06 Akranes fær að sigla á Þjóðhátíð Samgönguráðuneytið telur Samgöngustofu ekki hafa sýnt fram á að aðstæður til siglinga milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar séu aðrar en á milli Reykjavíkur og Akraness. 2. ágúst 2017 11:15 Segir útsýnissiglingar Akraness ólíkar stífum Þjóðhátíðarsiglingum Þórhildur Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu, segir að leyfi til tímabundinna siglinga milli Reykjavíkur og Akraness hafi verið veitt á grundvelli ákveðins rökstuðnings. Þá sé hins vegar ekki þar með sagt að skipið sé hæft til að sigla aðrar leiðir, til að mynda milli lands og Eyja. 31. júlí 2017 12:30 Hafa ferjað Þjóðhátíðargesti til lands í allan dag Óskar Pétur Friðriksson ljósmyndari tók púlsinn á Þjóðhátíðargestum á meðan þeir biðu eftir að komast aftur til Landeyjahafnar. 7. ágúst 2017 18:50 Þjóðhátíð í Eyjum: Vilja taka bát eins og Akranes á leigu eftir synjun Samgöngustofu Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum sendi í dag erindi til Samgöngustofu þar sem hann sækist eftir heimild fyrir siglingu báts, af sömu tegund og báturinn Akranes, milli lands og Eyja dagana í kringum Þjóðhátíð. Samgöngustofa hafði áður synjað beiðni um að fá Akranesið sjálft til að sigla leiðina umrædda daga. 26. júlí 2017 21:30 Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Sjá meira
Niðurstaða Samgöngustofu óboðleg „Mér finnst niðurstaða Samgöngustofu í þessu máli og rökstuðningurinn með henni vera full af innbyrðis mótsögnum, vera ómálefnaleg og óskiljanleg í samhengi hlutanna,“ segir Páll Magnússon. 2. ágúst 2017 06:00
Jón Gunnarsson sigldi með Akranesi á Þjóðhátíð í morgun Afpantaði flug til því hann vildi prófa að sigla til Vestmannaeyja. 4. ágúst 2017 13:06
Akranes fær að sigla á Þjóðhátíð Samgönguráðuneytið telur Samgöngustofu ekki hafa sýnt fram á að aðstæður til siglinga milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar séu aðrar en á milli Reykjavíkur og Akraness. 2. ágúst 2017 11:15
Segir útsýnissiglingar Akraness ólíkar stífum Þjóðhátíðarsiglingum Þórhildur Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu, segir að leyfi til tímabundinna siglinga milli Reykjavíkur og Akraness hafi verið veitt á grundvelli ákveðins rökstuðnings. Þá sé hins vegar ekki þar með sagt að skipið sé hæft til að sigla aðrar leiðir, til að mynda milli lands og Eyja. 31. júlí 2017 12:30
Hafa ferjað Þjóðhátíðargesti til lands í allan dag Óskar Pétur Friðriksson ljósmyndari tók púlsinn á Þjóðhátíðargestum á meðan þeir biðu eftir að komast aftur til Landeyjahafnar. 7. ágúst 2017 18:50
Þjóðhátíð í Eyjum: Vilja taka bát eins og Akranes á leigu eftir synjun Samgöngustofu Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum sendi í dag erindi til Samgöngustofu þar sem hann sækist eftir heimild fyrir siglingu báts, af sömu tegund og báturinn Akranes, milli lands og Eyja dagana í kringum Þjóðhátíð. Samgöngustofa hafði áður synjað beiðni um að fá Akranesið sjálft til að sigla leiðina umrædda daga. 26. júlí 2017 21:30