Lífið

Sýnir Bieber skilning en úthúðar R. Kelly

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Vic Mensa styður Justin Bieber skáldabróður sinn en úthúðar R. Kelly.
Vic Mensa styður Justin Bieber skáldabróður sinn en úthúðar R. Kelly. Vísir/getty

Rapparinn Vic Mensa sýnir Justin Bieber mikinn skilning fyrir að hafa aflýst tónleikaferð sinni Purpose World Tour og í sama viðtali kallar Mensa söngvarann R. Kelly öllum illum nöfnum. 



Ráðgert var að Mensa fylgdi Bieber á tónleikaferðalaginu og hitaði upp fyrir hann. Sá fyrrnefndi er nýbúinn að gefa út plötuna The Autobiography. Mensa er að vonum vonsvikinn yfir því að ekkert verði af tónleikahaldinu en hann sýnir Bieber jafnframt mikinn skilning og vonar að það sé í lagi með söngvarann. Mensa segist meira að segja sjálfur hafa aflýst tónleikum. TMZ greinir frá þessu.

 



 

Í tilkynningunni kom ekki fram hvers vegna söngvarinn ákvað að aflýsa tónleikunum en hann hefur spilað sleitulaust í tvö og hálft ár.Vísir/getty

„Það vilja allir bara græða peninga en þegar uppi er staðið erum við bara mennsk,“ segir Mensa og undirstrikar mikilvægi þess að þekkja eigin mörk. Mensa lætur þó ekki deigan síga því hann er nú þegar búinn að skipuleggja tónleikaröð fyrir næstu mánuði.

Kallar sambýliskonur sínar börnin sín og heimtar að þær kalli sig pabba.Vísir/Getty

Berst þá talið að söngvaranum R. Kelly sem einnig kemur frá Chicago en R. Kelly hefur verið á milli tannanna á fólki eftir að nokkrar konur, ásamt foreldrum þeirra, stigu fram og ásökuðu söngvarann um að hafa heilaþvegið sig og beitt harðræði og ofbeldi. Foreldrar kvennanna lýsa þessu sem eins konar sértrúarsöfnuði.



Bregst Mensa þá ókvæða við og segir að R. Kelly megi fara fjandans til. Hann sé viðrini og mjög skítugur maður sem þurfi að rotna á bak við lás og slá til eilífðar nóns.


Tengdar fréttir

R. Kelly gefið að sök að heilaþvo hóp kvenna

Söngvarinn Robert Sylvester Kelly, betur þekktur undir nafninu R. Kelly er gefið að sök að hafa heilaþvegið hóp kvenna og beitt þær harðræði og ofbeldi. Foreldrar kvennanna sem dvelja hjá söngvaranum lýsa þessu sem eins konar sértrúarsöfnuði. Sex konur búa með Kelly en hann er sagður banna þeim að vera í samskiptum við fjölskyldu og vini.

Justin Bieber aflýsir öllum tónleikum

Vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna finnur söngvarinn Justin Bieber sig knúinn til að aflýsa öllum tónleikum sem eftir eru á tónleikaferð hans Purpose World Tour.

Mayer kemur Bieber til varnar

Söngvarinn John Mayer kom kollega sínum í tónlistinni til varnar á Twitter í kvöld þegar hann sagði að það væri í rauninni gott að Justin Bieber hefði aflýst tónleikaferð sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×